Klaustursréttarhöldin svokölluðu áttu að vera yfirveguð leið til að fá niðurstöðu formlegra dómstóla til að kæfa niður dómstól götunnar, en málið er strax byrjað að leysast upp í farsa. Komnar eru á kreik samsæriskenningar um að Bára „Marvin“ Halldórsdóttir hafi verið að ganga erinda einhverra afla. Reimar Pétursson, lögmaður Miðflokksmanna, ákvað svo að biðja um upptökur frá Dómkirkjunni þrátt fyrir að þar séu engar myndavélar, sem segir að hann hafi ekki athugað hvort svo væri þrátt fyrir að skrifstofa hans sé í rétt 200 metra fjarlægð. Réttarhöld eru alls ekki ókeypis, dómarar eru á kjararáðslaunum og réttarsalir eru á dýrustu lóðum landsins, lögmenn eru heldur ekki á neinum Landspítalalaunum. Því vekur þetta upp spurninguna hvar gagnrýnendur Björns Levís Gunnarssonar Pírata séu í dag, en hann fékk á sig ákúrur fyrir að leggja fram dýrar, tímafrekar og tilgangslitlar fyrirspurnir.