Áhugamenn um verkalýðshreyfinguna telja nú líklegt að Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði, geti verið líklegur næsti forseti Alþýðusambandins.
Stefán hefur verið ráðgjafi Sólveigar Jónsdóttur, nýs formanns Eflingar, og vitað er að Efling og VR vilja tefla fram sínum kandídat til að taka við forystu ASÍ af Gylfa Arnbjörnssyni sem gefur ekki kost á sér.
Stefán væri óvæntur og athyglisverður kostur í þetta vandasama starf. Hann hefur vakið athygli fyrir pistlaskrif sín á Eyjunni og gæti reynst dýrmætur kostur í komandi átökum á vinnumarkaði.