Forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa framtíðarnefnd. Ekki til að smíða tímavél, heldur til að fjalla um helstu tækifæri og ógnanir Íslands í framtíðinni. Nefndin á að fjalla um þróun þeirra meginstrauma sem koma til með að hafa mótandi áhrif á samfélagið til framtíðar einkum með hliðsjón af þróun umhverfismála og lýðfræðilegum þáttum. Nefndin á einnig að stuðla að upplýstri umræðu um tækifæri og ógnanir framtíðarinnar og verði virkur umræðuvettvangur um framtíðarfræði.
Smári McCarthy verður formaður nefndarinnar. Líneik Anna Sævarsdóttir varaformaður. Aðrir nefndarmenn eru Andrés Ingi Jónsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Þorsteinn Víglundsson, Logi Einarsson og Inga Sæland. Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, verður starfsmaður nefndarinnar.
Og nei, þetta er ekki frétt af vefnum Baggalútur.
Þetta er alvöru nefnd. Nefnd sem á að skila forsætisráðherra greinargerð á hverju ári.