DV tók eftir því og setti í örlítinn mola þá staðreynd að fáir vilja vinna með Miðflokknum, hinu nýja og öfluga stjórnmálaafli undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Flokkurinn náði besta árangri sem nokkur nýr flokkur hefur náð í Alþingiskosningum með 10,9% atkvæða og náði þannig að skáka Framsóknarflokknum um 0,2 prósentustig. Flokkurinn nær hins vegar ekki að skáka Framsókn á sveitarstjórnarstiginu en náði samt inn 9 fulltrúum víða um land. DV fullyrti að enginn vildi vinna með þeim í meirihluta. Það er rangt og er hér með beðist velvirðingar á því.
Miðflokkurinn er í meirihluta með Áfram Árborg, Framsókn og óháðum og Samfylkingunni í Árborg. Fulltrúi Miðflokksins er Tómas Ellert Tómasson, verkfræðingur, ritstjóri Forsíðufrétta og starfsmaður Reykjavíkurborgar. Hann mun vera eini fulltrúi flokksins í sveitarstjórn og því valdamesti Miðflokksmaðurinn.