Framsókn í Hafnarfirði fékk góða heimsókn í dag frá nemendum í 7. bekk Öldutúnsskóla á kosningaskrifstofu sína í morgun. Börnin voru á flakki á milli kosningaskrifstofa og ræddu við stjórnmálaflokkana um leiðir til að draga úr plastnotkun.
Þess má geta að Valdimar Víðisson, skólastjóri Öldutúnsskóla, skipar annað sætið á lista Framsóknar og Óháðra í Hafnarfirði. Valdimar setti hjarta við færslu oddvitans sem setti mynd af börnunum á Facebook. Margir Framsóknarmenn eru ánægðir með heimsóknina, þar á meðal þingmennirnir Willum Þór Þórsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir og athafnamaðurinn Matthías Imsland.