Karlalistinn, þá sér í lagi oddviti listans, gerir mikið úr því að Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, hafi sagt eitthvað neikvætt í útvarpsviðtali um einhverja menn í hópnum sem kennir sig við #daddytoo og sett eitthvað læk á Facebook. Svo virðist sem mikil vinna og tími frambjóðenda Karlalistans fari í þetta, en á sama tíma vill Karlalistinn ekki beint kenna sig við #daddytoo-hópinn.
Nú eru sextán framboð í borginni. Tugir þúsunda kjósenda. Það sjá það allir nema Karlalistamenn að það er ekki vænlegt til árangurs að eyða tíma sínum í að tala illa um femínista á netinu og einhvern einn tiltekinn frambjóðanda Samfylkingarinnar.