Um klukkustund síðar var annar 17 ára ökumaður stöðvaður fyrir ofsaakstur í Garðabæ. Hraði bifreiðar hans mældist 120 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 80 km/klst. Móður ökumanns var tilkynnt um málið sem og barnaverndaryfirvöldum.
Þrír ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.
5 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í Breiðholti í gærkvöldi á vegarkafla þar sem leyfður hámarkshraði er 50 km/klst. Hraði þeirra mældist frá 83 til 89 km/klst.