fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Þriðja hópuppsögnin hjá Íslandshótelum – Mikill meirihluti á uppsagnarfresti

Erla Hlynsdóttir
Föstudaginn 29. maí 2020 16:05

Íslandshótel er stærsta hótelkeðja landsins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslandshótel hafa sagt upp um 130 manns og er þetta þriðja hópuppsögnin í vor. Í lok mars var 139 manns sagt upp og 246 um síðustu mánaðamót. Alls hafa því um 515 starfsmenn hótelkeðjunnar fengið uppsagnarbréf á árinu en þar störfuðu fyrir tæplega 600 manns. Íslands­hót­el er stærsta hót­elkeðja lands­ins með um 1.850 her­bergi.

„Það er bara áframhaldandi samdráttur. Við sjáum ekki fram á að það breytist á næstunni. Þetta er eins og með önnur fyrirtæki sem eru að grípa til sambærilegra ráðstafana,” segir Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela.

Íslandshótel reka 17 hótel um allt land en 10 eru þegar lokuð. Nýverið voru auglýst sérstök tilboð fyrir þá sem hyggjast ferðast innanlands í sumar en Davíð segir að bókanir séu aðeins brot af því sem gerist í hefðbundnu árferði.

Þau hótel sem verða opin í sumar verða því að stærstu leyti mönnuð starfsfólki á uppsagnarfresti og Davíð viðurkennir að hann hafi nokkrar áhyggjur af starfsandanum.

Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela

„Það verður heilmikil áskorun að halda uppi bæði starfsanda og þjónustustigi. Við erum sem sem betur fer heppin með starfsfólk og allir virðast ætla að stíga þessa vegferð með okkur og sýna skilning á stöðunni. Ég er vongóður en þetta verður erfitt,“ segir hann. Davíð tekur ennfremur fram að vonir standi til að hægt sé að ráða starfsfólk aftur, hluta þess hið minnsta, þegar ferðaþjónustan nær að blómstra á nýjan leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“