fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

„Flugfreyjur fá aldrei laun frá bandaríska fjárfestinum sem þær sætta sig við“

Auður Ösp
Fimmtudaginn 21. maí 2020 16:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er bara ein lausn núna-að ríkisvæða Icelandair, setja það í gjaldþrot fyrst og ásamt lífeyrissjóðunum endurreisa félagið,“ segir Jónína Ben athafnakona. Tvísýn staða Icelandair er á allra vörum þessa dagana. Boðað hefur verið til hluthafafundar á morgun, föstudaginn 22 maí þar sem ákvörðun verður tekin um hlutafárútboð.Ætlunin er að  safna allt 200 millj­ón­um Banda­ríkja­dala ,rúmlega 29 millj­örðum íslenskra króna.

Stjórnendum Icelandair hefur sem kunnugt er ekki tekist að ná langtíma kjarasamningum við flugstéttir eins og til stóð fyrir fundinn á morgun.Flugfreyjufélag Íslands hafnaði í gærdag lokatilboði flugfélagsins og ekki hefur verið boðað til nýs fundar.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði í samtali við Víglínuna á STöð 2 á dögunum að ef fjármögnungar- og hagræðingaráform fyrirtækisins gengu ekki eftir væri ástæðulaust fyrir ríkið að stíga inn í og veita hjálp í gegnum lánalínur með ríkisábyrgð. Icelandair stefnir því að óbreyttu í gjaldþrot.

Í viðskiptalífinu virka aðeins lögmál hagnaðar og ójöfnuðar

Í færslu á facebook ritar Jónína að það eina í stöðu Icelandair sé að allir íslenskir ríkisborgarar eignist  hlut í endurreistu flugfélagi eftir gjaldþrot, líkt og Eimskip forðum.

„Þegar við sleppum lykil fyrirtækjum í hendur erlendum fjárfestum dettur einhverjum í hug að við getum haldið uppi íslenskum launatöxtum?“ spyr Jónína jafnframt og bætir við að „svona fjárfestum sé alveg sama um tilfinningar okkar til Icelandair og íslenskra flugfreyja.“

Þá bendir Jónína á að í viðskiptalífinu virki aðeins lögmál hagnaðar og ójöfnuðar og þrælsóttinn verði algjör því enginn vill missa vinnuna sína.

„Ísland er örland og hér fá erlendir hrægammar að kaupa fyrirtæki og jarðir óáreittir með öllu: ekkert eftirlit, engin lög um eitt eða neitt. ESB stjórnar jafnvel hvernig við markaðssetjum landið okkur-pælið í því. Aulaháttur þeirra sem sömdu fyrir hönd þjóðarinnar um ESB reglugerðir er þjóðarskömm.“

Jónína segist sjálf hafa barist gegn erlendu eignarhaldi á íslenskum fyrirtækjum, jörðum og sér í lagi bönkum og jafnvel fjölmiðlum. Hún hafi í kjölfarið verið sökuð um að vera þjóðernissinni, talin þröngsýn og illa við útlendinga. Bendir hún á að svokölluð „aumingjagóðmennska“ sumra sé hræsni í fjölmiðlum.

Þá segir Jónína að íslenskt stjórnvöld hafi ekkert gert varðandi erlent eignarhald og horft á eftir hverju fyrirtækinu  og bönkum komast í hendur áhættufjárfesta sem hlíta sjaldnast lögum.

Bogi búinn á taugum

Sem kunnugt er eiga íslenskir lífeyrssjóðir stóran hlut í Icelandair. Jónína segir lífeyrissjóðina aldrei eiga eftir að ná sinni fjárfestingu til baka þegar erlend öfl eiga 13 prósent í félaginu.

„Getur verið að þeir hafi bara aldrei búið erlendis, vita því ekki að í viðskiptum er enginn annars vinur og nú fara viðskiptin fram milli landa án eftirlits. Stjórnsýslan er lömuð í þessu nýja umhverfi og aumingja Bogi Nílsen, búin á taugum í að reyna að fela erlenda fjárfestinn sem stjórnar öllu og nú á að svæla meiri peninga/ hlutafé frá lífeyrissjóðunum og láta ríkið borga inn í þessa bottlausu hít. Bjarni Ben sér í gegnum þetta og mun aldrei henda peningum til þessa manns sem er leppur Vogunarsjóðs sem er varasamur sjóður,“

ritar Jónína og bætir við á öðrum stað:

„Flugfreyjur fá aldrei laun frá bandaríska fjárfestinum sem þær sætta sig við. Þær verða að bíða eftir að félagið fari í gjaldþrot og komist aftur í eigu Íslendinga.“

Þá segir Jónína að Icelandair ség ott fyrirtæki vegna starfsfólksins en eigendur hafi mokað út úr félaginu í tvo áratugi miskunarlaust og notað það „í peningaþvætti og bókhaldsbraski sínu.“

„Ráðamenn réðu ekki neitt við neitt enda allir hræddir um kjósendur sína sem elskuðu útrásarvíkingana og nú falla fyrir erlendum vogunarsjóðum-útlendingar redda okkur ekki gott fólk, ekki lengur.

Ég held að lífeyrissjóðirnir ráði ekki einir við að taka ákvarðanir og þurfi ráðgjafa sem skilur samhengi hlutanna því bekkingarleikurinn er slíkur.

„Íslenska ríkið fær aldrei öryggi í flugsamgöngum með erlent eignarhald á Icelandair.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Erum við sátt við að algóritminn sjái um uppeldið“

„Erum við sátt við að algóritminn sjái um uppeldið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer