fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Svarthöfði: Set tóbakið þar sem mér sýnist

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 9. september 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í vikunni fór Svarthöfði í kaupfélagið sitt, Nettó í Mjódd, til að kaupa vikuskammtinn sinn af íslensku neftóbaki. Það er þjóðlegur sómi að því að taka hressilega í nefið og vörina. Svarthöfði verður einnig sprækur og gáskafullur af því.

En einu tók Svarthöfði eftir. Tóbakið grófmalaða og ilmsæta er komið í nýjar dollur sem eru mikil tímamót. Persónulega er Svarthöfði á þeirri skoðun að hlutir eigi ekki að breytast, sérstaklega ekki sígildar vörur eins og íslenskt neftóbak. Stíllinn á dollunum var eins klassískur og umbúðirnar fyrir Royal-búðinga og lyftiduft. En feginn er Svarthöfði þó að ekki var hlaupið á eftir duttlungum þeirra sem vilja umbylta dollunum í samræmi við einhverjar „nútímakröfur.“

Byrjum á innsiglinu. Einhverjir höfðu kvartað yfir því að dollurnar væru ekki innsiglaðar og Svarthöfði er ánægður með að sjá að slíkt prjál sé ekki á nýju dollunum þó að barminum hafi verið breytt örlítið. Svarthöfði hefur séð það í Ríkissjónvarpinu hvernig neftóbak er verkað. Það er einn gamall sveitalarfur sem snýr rjólinu í tunnu og treður því berhentur í dollurnar. Svarthöfði treystir honum vel.

Sumir hafa kvartað yfir því að það vantaði innihaldslýsingu á gömlu dollurnar og hoppaði Svarthöfði hæð sína í loft upp þegar hann sá að þær voru heldur ekki á þeim nýju. Við vitum öll að það er ammoníak, salt, glerbrot, hrossatað og miltisbrandur í íslensku neftóbaki. Það þýðir ekkert að vera að velta sér upp úr því og óþarfi að fæla unga veganista frá því að neyta þessarar náttúrulegu og þjóðlegu vöru.

Svarthöfði varð hins vegar fyrir miklum vonbrigðum með skilaboðin sem sett voru hægra megin á límmiða nýju dollunnar. „Ekki ætlað í munn.“ Þetta er nú pólitískur rétttrúnaður af verstu sort, ábyggilega ferlað og línað á rándýrum fundi þar sem glaðhlakkalegir verkefnastjórar og almannatenglar smjatta á gojibauna-beyglum og kamillu-frappúsínó.

Nei, Svarthöfði lætur slíkt pakk ekki segja sér hvar hann stingur sínu tóbaki. Til að mótmæla þessarri firru og valdníðslu ætlar Svarthöfði að troða neftóbakinu inn í eyrun í dag.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Samtal Liverpool við Slot virkt

Samtal Liverpool við Slot virkt
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Villa staðfestir gleðitíðindin

Villa staðfestir gleðitíðindin
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“