Skotárás átti sér stað í borginni Halle í Þýskalandi fyrr í dag. Tveir eru látnir. Fjöldi þýskra miðla greina frá þessu.
Ekki er vitað hvert skotmark árásarinnar var, en líklegast þykir að henni hafi verið beint að gyðingum eða múslimum. Árásin átti sér stað bæði í nágreni við bænahús gyðinga og Kebab-stað.
Samkvæmt Twitter-aðgangi lögreglunnar flúðu árásarmennirnir í bifreið, stuttu eftir árásina var einn handtekinn, grunaður um verknaðinn.
Myndband sem sýnir árásarmann skjóta fjórum sinnum dreifist nú um netheima, en myndbandið má sjá hér að neðan.
Irre! #Halle via @MDR_aktuell pic.twitter.com/0SLLBaGF5O
— Michael Ziesmann (@M_Ziesmann) October 9, 2019