fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Björn varar fólk við: „Getur jafnvel dregið þig til dauða“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 1. júní 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands, segir það ekki vera að ástæðulausu að heilbrigðisstarfsfólk vari við notkun peptíða. Rætt er við Björn Rúnar í Morgunblaðinu í dag en töluverð umræða hefur verið um peptíð að undanförnu.

Dæmi eru um að peptíð gangi kaupum og sölum á svörtum markaði og er til dæmis rætt við einkaþjálfarann og vaxtaræktariðkandann Viktor Snær Oliversson í umfjöllun Morgunblaðsins.

Hann gengst við því að nota svokallað Retatruitide, sem oft er kallað Reta, sem hefur svipaða virkni og þyngdarstjórnunarlyfið Ozempic.

„Ég hugsaði að ef ég gæti fundið leið til að vera ekki svangur og pirraður þá væri ég til í að prófa það. Reta er bara Ozempic á sterum,“ segir hann við Morgunblaðið.

Björn segir aftur á móti að varast beri notkun þessara efna og mikilvægt sé að „taka til í orðanotkuninni“ við notkun slíkra efna. Segir hann að heilbrigðisstarfsfólk hafi gríðarlegar áhyggjur af notkun þessara efna sem ekki er ávísað af læknum. Dæmi séu um dauðsföll erlendis af völdum þar sem fólk notar lyfin án eftirlits.

„Ef þú ert að sprauta þig með einhverju efni sem á annaðhvort að veikja eða styrkja ónæmiskerfið þitt og það er ekkert ójafnvægi í gangi sem búið er að staðfesta með rannsóknum, þá getur það verið stórhættulegt og haft margvíslegar alvarlegar afleiðingar. Ef efnið er ekki nógu hreint getur þú hreinlega fengið lífshættulega sýkingu sem getur jafnvel dregið þig til dauða,“ segir Björn og bætir við að varanlegur líffæraskaði geti komið fram mörgum árum síðar.

Nánar er fjallað um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar