fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Fréttir

Bylgjan baðst afsökunar á nafnlausum áróðri gegn Viðreisn – „Viðvörun til allra hægri kjósenda“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 16. maí 2026 16:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bylgjan hefur beðið Viðreisn afsökunar á nafnlausum áróðri sem var fluttur í auglýsingatíma útvarpsstöðvarinnar í gær. Þar voru hægrimenn varaðir við því að greiða atkvæði til Viðreisnar og fullyrt að forysta flokksins myndi aldrei leyfa samstarf við aðra hægriflokka.

Auglýsingin var eftirfarandi:

„Viðvörun til allra hægri kjósenda: Atkvæði til Viðreisnar er atkvæði til vinstri þar sem forysta Viðreisnar mun ekki leyfa samstarf við Sjálfstæðisflokk, Miðflokk og Framsóknarflokk. Kjóstu til hægri en ekki Viðreisn.“

Ekki fylgdi með hver stóð að baki auglýsingunni en samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV mun það vera Garðbæingurinn og Sjálfstæðismaðurinn Björn Skorri Ingólfsson og birtingarhúsið Bestun. Hefur DV eins heimildir fyrir því að bæði Bylgjan og Bestun hafi beðið Viðreisn afsökunar á birtingunni sem þykir stríða gegn góðum siðum og reglum.

Ekki er að sjá að Bylgjan hafi birt stefnu sína í kosningaauglýsingum á vefsíðu sinni en umræður um auglýsingar af þessu tagi hafa áður sprottið upp kollinum og má þá helst nefna þingkosningarnar árin 2016 og 2017 þar sem nafnlausar áróðursauglýsingar voru svo áberandi að það leiddi til lagabreytinga þar sem blátt bann var lagt við slíku. Nú er að finna ákvæði í lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka þar sem nafnlaus áróður varðar við sektum sé hann á vegum stjórnmálasamtaka, kjörinna fulltrúa, frambjóðenda eða frambjóðenda í persónukjöri. Þessum aðilum er óheimilt að fjármagna, birta eða taka þátt í birtingu efnis eða auglýsinga í tengslum við stjórnmálabaráttu nema fram komi við birtingu að efnið sé birt að tilstuðlan eða með þátttöku þeirra.  Áðurnefndur Björn Skorri er hvorki frambjóðandi né kjörinn fulltrúi en Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) hefur hvatt Íslendinga til að setja sér reglur hvað varðar kosningabaráttu af hálfu þriðja aðila. Árið 2021 þegar nafnlaus áróður á vegum stjórnmálasamtaka og stjórnmálamanna var bannaður voru sömuleiðis settar reglur um að allar auglýsingar eða kostað efni sem ætlað er að hafa áhrif á úrslit kosninga þurfi að vera merkt auglýsanda eða ábyrgðarmanni.

Eins má vísa til siðareglna Sambands íslenskra auglýsingastofa þar sem segir meðal annars:

„Auglýsingar eiga hvorki að innihalda yfirlýsingar, staðhæfingar, hljóð- né myndefni sem líklegt er til að villa um fyrir neytandanum, beint eða óbeint, með því að gefa eitthvað í skyn, sleppa nauðsynlegum upplýsingum eða með því að nota tvíræða framsetningu eða ýkjur“

Eins er það tekið fram að augljóst eigi að vera hver auglýsandinn er.  RÚV hefur sett sér sérstakar reglur um auglýsingar hagsmunasamtaka, stjórnmálaflokka og stuðningsmanna flokka, einstakra málefna og einstaklinga. Þar er sú krafa gerð að staðhæfingar í auglýsingum séu sannreynanlegar með einföldum og aðgengilegum hætti.

Auglýsingunni var beint til allra hægri kjósenda en ætla má að þar sé einkum verið að skora á kjósendur í borginni þar sem líklegt er talið að Viðreisn endi í lykilstöðu. Rétt er að taka fram að Viðreisn hefur ekki útilokað samstarf til hægri en samkvæmt kosningaspá Vísis eru meira en helmingslíkur á að Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn myndi nýjan meirihluta. Að mati Eiríks Bergmanns, prófessors í stjórnmálafræði, er það augljósasti meirihlutinn út frá málefnum, stöðu og afstöðu oddvita flokkanna þriggja. Oddviti Viðreisnar í Reykjavík, Björg Magnúsdóttir, hefur aðeins útilokað samstarf við Miðflokkinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Forstöðukona Konukots segist skilja vel áhyggjur nágranna: „Maður hræðist það sem maður þekkir ekki“

Forstöðukona Konukots segist skilja vel áhyggjur nágranna: „Maður hræðist það sem maður þekkir ekki“
Fréttir
Í gær

Viðar segir ekki standast að launahækkanir leiði til verðbólgu – Verð úti í búð lækkar ekki heldur bara hækkar

Viðar segir ekki standast að launahækkanir leiði til verðbólgu – Verð úti í búð lækkar ekki heldur bara hækkar
Fréttir
Í gær

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð
Fréttir
Í gær

Andrea vill að María Rut og stjórnarliðar líti sér nær – „Fullkomlega ömurlegt og óásættanlegt“

Andrea vill að María Rut og stjórnarliðar líti sér nær – „Fullkomlega ömurlegt og óásættanlegt“
Fréttir
Í gær

Áhrifavaldur hraunar yfir Ísland og fær það óþvegið: „Langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni“

Áhrifavaldur hraunar yfir Ísland og fær það óþvegið: „Langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni“
Fréttir
Í gær

Samfylkingin logar stafnanna á milli: „Við krefjumst þess að framkvæmd laganna verði stöðvuð“

Samfylkingin logar stafnanna á milli: „Við krefjumst þess að framkvæmd laganna verði stöðvuð“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Adam í baráttu við banvænan sjúkdóm – „Erfitt að horfa upp á þau ganga í gegnum þetta“

Adam í baráttu við banvænan sjúkdóm – „Erfitt að horfa upp á þau ganga í gegnum þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

20 ára kynni: Andstæðingar í pólitík – Samstíga í borgarstjórn, krabbameinsmeðferð og andstöðu við ESB – „Lífið líka fullt af áskorunum“

20 ára kynni: Andstæðingar í pólitík – Samstíga í borgarstjórn, krabbameinsmeðferð og andstöðu við ESB – „Lífið líka fullt af áskorunum“