fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Fréttir

Björg tekur alla oddvitana fyrir og hrósar þeim: „Það er þægilegt að ræða við hann“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 16. maí 2026 11:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í borginni, tók sig til og hrósaði öllum oddvitum allra þeirra framboða sem bjóða sig fram í Reykjavík. Þetta gerði Björg í færslu á Facebook í morgun.

Björg segir nokkuð ljóst að nú taki við ný kynslóð í Ráðhúsinu og kveðst hún vona að þeim beri gæfa til að vinna vel saman fyrir borgarbúa og setja þjónustu við Reykvíkinga efst á dagskrá.

„Þetta er upp til hópa gott fólk sem ég veit að vill leggja samfélaginu gott, þó okkur greini stundum á um bestu leiðirnar til þess. Við höfum varið miklum tíma síðustu daga og mig langar að nota tækifærið og hrósa þeim,” segir Björg sem hefur svo upptalninguna.

Um Sigfús Aðalsteinsson, oddvita Okkar borgar, segir hún:

„Fær hrós fyrir að hafa menntað sig sem leikskólakennari – áttar sig augljóslega á mikilvægi þeirra starfa.“

Þetta segir hún um Guðmund Inga Þóroddsson, oddvita Flokks fólksins:

„Útsjónarsemi við að koma sér í stöðu til þess að tala máli sinna kjósenda.”

Um Einar Þorsteinsson, oddvita Framsóknar, segir hún:

„Fær prik fyrir að láta sér aldrei tækifæri úr greipum renna tækifæri til þess að segja pabbabrandara. Það skiptir máli að vera léttur.”

Þetta segir hún um Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Vinstrisins:

„Sanna ber nafn með rentu og er sönn manneskja. Sanna hefur sérstaklega góða nærveru.“

Hún hrósar líka Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins:

„Hún fær hrós fyrir þrautseigju, að hafa verið í minnihluta í borgarstjórn í 8 ár og vera ekki búin að gefast upp.“

Pétur Marteinsson hjá Samfylkingunni fær einnig lof.

„Pétur er baráttumaður fyrir jöfnuði í samfélaginu sem ég virði. Ég sé margt fara saman í stefnu Viðreisnar og Samfylkingar.“

Um Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, segir hún:

„Hann fær hrós fyrir að vera límheili, Ari er mjög talnaglöggur sem mun koma sér vel í Ráðhúsinu.“

Hún hrósar síðan Silju Sóleyju Birgisdóttur hjá Sósíalistaflokknum.

„Mér finnst Silja ákveðin stjarna í þessari kosningabaráttu, hún spratt einhvern veginn fram á sjónarsviðið og hefur komið mjög vel fram.“

Kristinn Jón Ólafsson, oddviti Pírata, fær einnig gott hrós.

„Kiddi fær hrós fyrir að standa með mikilvægum málum þó það sé stundum erfitt. Kiddi tekur líka rökum og það er þægilegt að ræða við hann.“

Um Ingimar Þór Friðriksson hjá Góðan daginn-framboðinu segir hún:

„Ingimar fær hrós fyrir sérstaklega góða framkomu. Ingimar er mikið ljúfmenni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt