
Tvær pólskar konur, önnur á fimmtugsaldri og hin á fertugsaldri, hafa verið ákærðar fyrir stórfellt fíkniefnabrot.
Þeim er gefið að sök að hafa þann 4. janúar síðastliðinn staðið að innflutningi á rúmlega 3.000 ml af amfetamínbasa með styrkleika um og yfir 50%.
Efnin fluttu konurnar með flugi hingað til lands frá Amsterdam í Hollandi. Voru efnin falin í fjórum vínflöskum í farangri þeirra.
Fyrirtaka verður í málinu við Héraðsdóm Reykjaness þann 10. apríl næstkomandi.