fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fréttir

Trump segir vopnahléið vera stórt augnablik fyrir heimsfriðinn og spáir gullöld í Miðausturlöndum

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 8. apríl 2026 09:55

Donald Trump Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lýst var yfir tveggja vikna vopnahléi milli Írana og Bandaríkjamanna seint í gærkvöld, fyrir milligöngu stjórnvalda í Pakistan. Stríðandi aðilar hafa hvorir um sig lýst yfir sigri í kjölfar vopnahlésins.

Í nýrri færslu á Truth Social segir Trump að þetta sé stór dagur fyrir heimfriðinn og hann spáir nýrri gullöld í Miðausturlöndum:

„Stór dagur fyrir heimsfriðinn. Íran vill að það gerist, þeir hafa fengið nóg! Það hafa líka allir aðrir. Bandaríkin munu hjálpa til við að greiða fyrir skipaferðir í gegnum Hornússundið. Það verða miklar jákvæðar aðgerðir. Stórir peningar verða græddir. Íran getur hafið uppbyggingarferli,“ segir Trump og heitir því að Bandaríkjamenn munu koma með fjármagn til enduruppbyggingar landsins.

„Rétt eins og við erum að upplifa í Bandaríkjunum, þá gæti þetta orðið gullöld í Miðausturlöndum!!!!“ skrifar forsetinn, sem hótaði Írönum gjöreyðileggingu fyrir sólarhring síðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni