
Kveðinn var upp í dag í Héraðsdómi Reykjaness dómur í máli sem Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu höfðaði á hendur tónlistarmanninum Stefáni Jakobssyni, fyrir líkamsárás.
Stefáni var gefið að sök að hafa gefið manni sem sat við hlið hans í leigubíl olnbogaskot í andlitið með þeim afleiðingum að maðurinn þríbrotnaði í andliti auk þess að hljóta áverka á vör.
Brotaþoli gerði kröfu um miska- og skaðabætur að fjárhæð tæplega fimm milljónir króna.
Ingi Tryggvason héraðsdómari sýknaði Stefán á grundvelli þess að ekki þótti sannað að maðurinn hefði hlotið áverka sína í bílferðinni.
Var dómurinn kveðinn upp kl. 15 í dag.
„Þetta er náttúrulega bara sú niðurstaða sem að var stefnt og hún er í fullkomnu samræmi við bara þau gögn sem lögð voru fram fyrir dómi,“ sagði Ómar R Valdimarsson hæstaréttarlögmaður, verjandi Stefáns, í stuttu viðtali við DV, að lokinni dómsuppkvaðningu.
„Þetta var allt á brauðfótum frá upphafi. Það var óskiljanlegt að ákæruvaldið hafi ákveðið að fara áfram með þetta,“ segir Ómar ennfremur.
„Öll gögn málsins bentu til þess að það yrði aldrei sakfellt í þessu. Það var alltaf ljóst að Stefán yrði sýknaður, og það er bara eins og ákæruvaldið skelli skollaeyrum við því tjóni sem svona málarekstur hefur í för með sér fyrir einstaklinga, ég tala nú ekki um þegar mál eru jafnóburðug og þetta.“
Ómar segir að niðurstaðan sé mikill léttir fyrir Stefán enda hafi málið legið þungt á honum. „Stefán er skiljanlega mjög feginn og það er mikill léttir fyrir hann að hafa þetta ekki lengur hangandi yfir sér.
Ómar segir að niðurstaðan komi alls ekki á óvart og hann á ekki von á því að málinu verði áfrýjað til Landsréttar. „Miðað við niðurstöðu dómsins tel ég engar líkur á því að það verði áfrýjað.“
Brotaþoli hlaut mjög alvarlega áverka þetta kvöld og hefur glímt við afleiðingar þeirra allar götur síðan atvikið átti sér stað, haustið 2023. Dómari telur hins vegar ekki hafi yfir skynsamlegan vafa að hann hafi hlotið áverkana með þeim hætti sem lýst er í ákæru. Í dómsniðurstöðu segir:
„Eins og atvikum málsins er háttað þykir ekki hægt að útiloka að brotaþoli hafi fengið þá áverka sem tilgreindir eru í ákæru af annarri ástæðu en þeirri að ákærði hafi gefið honum olnbogaskot m.a. með vísan til þess sem gekk á leigubifreiðinni. En ákærði verður ekki sakfelldur fyrir aðra háttsemi en þá sem lýst er í ákæru, sbr. 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Hvað þetta varðar verður einnig að hafa í huga að eftir að brotaþoli fór úr leigubifreiðinni er ekki við annað að styðjast en framburð hans sjálfs.“
Réttargæslumaður brotaþola í málinu var Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður. Hann segir í samtali við DV að það sé ákæruvaldsins að meta næstu skref end hafi það forræði í málinu. Hins vegar þyki honum niðurstaðan heldur rýr.