fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fréttir

Skiptar skoðanir í stjórn RÚV: Stefán Jón vill ekki að fréttir víki fyrir íþróttaefni

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 8. apríl 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Jón Hafstein, stjórnarformaður RÚV, er þeirrar skoðunar að ekki eigi að hnika til föstum aðalfréttatíma sjónvarps klukkan 19 á RÚV1 á meðan RÚV2 er ónotuð.

Stefán Jón vakti máls á þessu á stjórnarfundi RÚV fyrir skemmstu, en fjallað er um málið á síðum Morgunblaðsins í dag.

Í fundargerð stjórnar kemur fram að á fundinum hafi verið rætt um samspil á milli RÚV 1 og RÚV 2 þegar kemur að íþróttum og fréttum. Óskaði Stefán Jón eftir skýrari línum um verkaskiptingu sjónvarpsrásanna.

„Nefndi til dæmis að í útvarpi væri Rás 2, „íþróttarásin” að öllu jöfnu og gæti sama átt við sjónvarp. Stefna ætti að því að hnika ekki föstum aðalfréttatíma sjónvarps sem nú sé kl. 19:00 á RÚV 1 að óþörfu meðan RÚV 2 væri ónotuð. Að hans mati væri fréttatíminn gengisfelldur með því að færa hann á breytilega jaðartíma í dagskrá og gæta yrði að því að hlutverk og ábyrgðarskylda RÚV gagnvart fréttaflutningi væri víðtæk og mikil, ekki síst þegar framboð af kvöldsjónvarpsfréttum almennt væri minna nú en áður,“ segir í fundargerð stjórnar.

Eva Georgs Ásudóttir, dagskrárstjóri sjónvarps, sagði á fundinum að það væri dagskrárákvörðun að setja ekki vinsælustu dagskrárliði í línulegu sjónvarpi til höfuðs hvor öðrum.

„Víða á Norðurlöndum og Bretlandi séu fréttatímar færðir vegna íþróttaútsendinga og annarra stórviðburða. Tilfærsla frétta sé ekki bundin við öflun auglýsingatekna hjá þeim aðilum. Vinsælir línulegir dagskrárliðir á borð við íþróttir geri það að verkum að kvöldfréttir ná til fleiri áhorfenda sem annars myndu ekki horfa á þær,“ segir í fundargerð stjórnar.

Stefán Jón mun hafa boðað frekari umræður um skýrari og fastmótaðri verkaskiptingu rásanna þegar væntanleg dagskrárstefna sjónvarps verður kynnt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Stjúpinn frá helvíti – Dómurinn birtur

Stjúpinn frá helvíti – Dómurinn birtur
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Eddie Hall vill berjast aftur við Hafþór Júlíus en ekki í hnefaleikum – „Ef það eru nægir peningar í spilinu“

Eddie Hall vill berjast aftur við Hafþór Júlíus en ekki í hnefaleikum – „Ef það eru nægir peningar í spilinu“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Stebbi Jak hættur í Dimmu – „Silli og eiginkonan hans hafa frá upphafi máls tekið skýra afstöðu gegn mér“

Stebbi Jak hættur í Dimmu – „Silli og eiginkonan hans hafa frá upphafi máls tekið skýra afstöðu gegn mér“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Flugfélagið Vueling þarf að greiða níu íslenskum farþegum bætur – Kunnu ekki að lesa úr veðurspá

Flugfélagið Vueling þarf að greiða níu íslenskum farþegum bætur – Kunnu ekki að lesa úr veðurspá
Fréttir
Í gær

Byggt umfram íbúðaþörf í fyrra og íbúðaskuldin minnkar

Byggt umfram íbúðaþörf í fyrra og íbúðaskuldin minnkar
Fréttir
Í gær

Uppsögn Ragnars vekur mikil viðbrögð: „Mönnum er alltaf refsað fyrir að skara fram úr“

Uppsögn Ragnars vekur mikil viðbrögð: „Mönnum er alltaf refsað fyrir að skara fram úr“