Lágvöruverðsverslunin Prís tekur nú við peningum í formi seðla og mynta. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Prís hefur sent á fjölmiðla. Segir þar að tekið sé við mynt og seðlum á nýjum afgreiðslukössum þar sem starfsmaður afgreiðir hvern viðskiptavin fyrir sig.
„Hingað til hefur verslunin aðeins verið með sjálfsafgreiðslukassa og ekki tekið við reiðufé. Um er að ræða svar við kalli viðskiptavina sem hafa saknað þess að hafa þennan valmöguleika við greiðslu. Með breyttri áherslu er aðgengi viðskiptavina með ólíkar þarfir einnig bætt,“ segir í tilkynningunni.
„Frá því að Prís opnaði höfum við orðið þess áskynja að viðskiptavinir okkar sakna þess að geta ekki greitt með reiðufé. Hugmyndin með að vera eingöngu með sjálfsafgreiðslukassa var að spara í yfirbyggingu því allt hjá okkur gengur út á það að bjóða lægsta verðið en á sama tíma þá er það alltaf mikilvægt að eiga í góðu samtali við viðskiptavini, hlusta á óskir þeirra og þetta er í raun viðbragð við eindregnum óskum þeirra,“ segir Hildur Scheving, markaðsstjóri Prís.
Í tilkynningunni segir ennfremur: „Til þess að geta tekið við reiðufé hafa verið settir upp tveir beltakassar í versluninni þar sem starfsmaður mun nú þjónusta og afgreiða viðskiptavini.“