fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fréttir

Fékk ekki vinnu á hótelinu og braut rúðu

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 8. apríl 2026 07:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórir gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina, en alls eru 66 mál bókuð eftir nóttina.

Í miðborginni var einstaklingur handtekinn eftir að hann hafði brotið rúðu á hóteli. Að sögn lögreglu hafði viðkomandi fengið neitun um starf á hótelinu og brást hann illa við því. Maðurinn hefur verið ítrekað tilkynntur til lögreglu og var hann vistaður í fangaklefa.

Lögregla fékk tilkynningu um mann í annarlegu ástandi í miðborginni. Þegar betur var að gáð var maðurinn eftirlýstur í kerfum lögreglu og var hann því handtekinn og vistaður í fangaklefa.

Lögreglu var svo tilkynnt um eld í tveimur ökutækjum í Kópavogi. Eldurinn hafði borist yfir í yfirbyggingu, en um var að ræða talsvert tjón og er málið í rannsókn.

Lögregla hafði svo afskipti af nokkrum ökumönnum sem grunaðir eru akstur undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis. Einn þeirra var stöðvaður í hverfi 111 en hann reyndist einnig vera sviptur ökuréttindum og með fíkniefni á sér. Hann var færður á lögreglustöð í hefðbundið ferli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni