fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fréttir

Sveitarfélagið Árborg skráð sem greiðandi pólitískra auglýsinga bæjarstjórans – „Röng skráning“ segir Bragi

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 17:30

Bragi segir sveitarfélagið ekki greiða fyrir auglýsingarnar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sveitarfélagið Árborg er skráð sem auglýsandi og greiðandi fyrir pólitískar auglýsingar Braga Bjarnasonar, bæjarstjóra, á Facebook. Bragi segir um ranga skráningu að ræða. Hann hafi sjálfur greitt fyrir birtingarnar.

Sveitarfélagið borgi ekki

„Þetta er röng skráning sem kvittast upp á mig persónulega. Allar greiðslur eru persónulega af minni hendi í gegnum síðuna,“ segir Bragi, sem hefur verið bæjarstjóri síðan sumarið 2024. Hann er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í næsta mánuði.

Í gögnum META, eiganda Facebook, segir að kostaðar auglýsingar síðunnar „Bragi Bjarnason, oddviti D-listans Árborg, séu á vegum sveitarfélagsins Árborgar og að sveitarfélagið sé greiðandi þeirra.

Um er að ræða kostaðar færslur fyrir 43.034 krónur, þar af 4.372 krónur í síðustu viku.

Þegar brugðist við

„Sveitarfélagið Árborg greiðir engar pólitískar auglýsingar á neinum miðlum frá frambjóðendum. Alveg sama hverjir þeir eru,“ segir Bragi. „Kannski er mín geta á Facebook ekki betri en svo. Ég sé aðeins að kostandi sé oddvitasíða Braga Bjarnasonar, mín framboðssíða. Það virðist vera eins og sveitarfélagið Árborg sé á bak við þetta en öll kort og allar greiðslur eru frá mér persónulega.“

Aðspurður um hvort skráningin verði löguð segir Bragi að hann hafi þegar brugðist við þessu.

„Mér var bent á þetta í morgun og var að laga þetta. Á nýjum auglýsingum frá mér verður Bragi Bjarnason skráður sem greiðandi,“ segir hann. „Maður vill alls ekki setja sveitarfélagið Árborg eða embættismenn þess í slæma stöðu núna þegar kosningar eru í nánd, engan veginn.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni