fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
Fréttir

Georgios ákærður fyrir morð á Kársnesi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 10:30

Frá vettvangi atburðarins í nóvember árið 2025.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ákæra hefur verið birt í máli sem varðar lát rúmlega fertugs Portúgala á heimili sínu við Skjólbraut á Kárnesi í Kópavogi föstudagskvöldið 28. nóvember árið 2025.

Hinn ákærði í málinu er grískur maður sem heitir Georgios Ntentes, fæddur árið 1995. Georgios er ákærður fyrir að hafa veist með ofbeldi að Portúgalanum og svipt hann lífi með því að stinga hann þremur stungum í kviðinn með hníf, skorið hann og stungið nokkrum sinnum með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann eða þrýst á framanverðan háls hans, með þeim afleiðingum að brotaþoli varð fyrir umfangsmiklu blóðtapi sem leiddi til dauða hans.

Georgious hefur neitað sök í málinu sem var þingfest við Héraðsdóm Reykjaness fyrir skömmu.

Gerðar eru miskabótakröfur á hendur hinum ákærða fyrir hönd barna og annarra aðstandenda. Nema bótakröfurnar samtals tæplega 25 milljónum króna.

Aðalmeðferð í málinu verður við Héraðsdóm Reykjaness 6.-8. maí næstkomandi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sjómaður geldur fyrir gamlar syndir – Sankaði að sér vopnum

Sjómaður geldur fyrir gamlar syndir – Sankaði að sér vopnum
Fréttir
Í gær

Óhugnaður í Kjós: „Sterkur grunur er um að hér sé um viljaverk að ræða”

Óhugnaður í Kjós: „Sterkur grunur er um að hér sé um viljaverk að ræða”
Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir líkamsárás á Kótelettunni

Ákærður fyrir líkamsárás á Kótelettunni
Fréttir
Í gær

Ragnar fékk uppsagnarbréfið afhent og ætlar að leita réttar síns – „Eitthvað gruggugt í farvatninu“

Ragnar fékk uppsagnarbréfið afhent og ætlar að leita réttar síns – „Eitthvað gruggugt í farvatninu“
Fréttir
Í gær

Fréttastjóri gagnrýnir lágflugið harkalega – „Hvar var flugmaðurinn sem sat við hliðina á honum?“

Fréttastjóri gagnrýnir lágflugið harkalega – „Hvar var flugmaðurinn sem sat við hliðina á honum?“
Fréttir
Í gær

Síminn kemst ekki lengra í dómskerfinu við að reyna að losna undan sekt – Braut lög um verðbréfaviðskipti

Síminn kemst ekki lengra í dómskerfinu við að reyna að losna undan sekt – Braut lög um verðbréfaviðskipti