fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Fengu fimm ára fangelsi fyrir að smygla fljótandi kókaíni í rauðvínskössum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrír erlendir karlmenn, þeir Ali Aoudia, Higor De Souza Bernardo og Marco Antonio Raizer Marafon, voru þann 24. mars, í Héraðsdómi Reykjavíkur, sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi.

Var þeim gefið að sök að hafa staðið að innflutningi á 9000 ml af kókaínklóríiði, ætluðu til söludreifingar hér á landi.

Efnin voru falin í tveimur rauðvínskössum sem fluttir voru hingað til lands í bíl með Norrænu sem kom til Seyðisfjarðar 12. nóvember 2025.

Rauðvínskassarnir fundust við leit tollvarða í bílnum og voru efnin fjarlægð og gerviefnum komið fyrir í staðinn. Eftirfarar- og hlustunarútbúnaði var komið fyrir í bílnum sem var svo afhentur ökumanni og honum hleypt inn í landið. Hélt hann áfram för sinni og fylgdist lögregla með ferðum hans. Í Reykjavík hitti hann annan ákærða og komu þeir gerviefnunum fyrir í innkaupapoka. Voru allir þrír ákærðu handteknir, leit gerð í Airnb-íbúð sem þeir dvöldust í og hald lagt á farsíma þeirra. Voru greind samskipti þeirra varðandi skipulagningu brotanna í símtækjunum.

Mennirnir neituðu sök fyrir dómi en voru allir fundnir sekir og hver um sig dæmdur í fimm ára fangelsi.

Dóminn má lesa hér.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni – Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa

Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni – Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur

Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heiða Björg svarar fyrir sig og birtir kortayfirlitið – „Á myndinni má sjá öll útgjöld mín“

Heiða Björg svarar fyrir sig og birtir kortayfirlitið – „Á myndinni má sjá öll útgjöld mín“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Snorri segir að íslenska skólakerfið hafi ekki verið hannað til að taka á móti öllum þessum erlendu börnum

Snorri segir að íslenska skólakerfið hafi ekki verið hannað til að taka á móti öllum þessum erlendu börnum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rústuðu íbúðinni og borguðu ekki leigu

Rústuðu íbúðinni og borguðu ekki leigu