fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Fréttir

Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 15:23

Frá Mývatni. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn er talinn alvarlega slasaður eftir umferðarslys sem varð í Mývatnssveit fyrr í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi Eystra.

Fram kemur að klukkan 12:45 í dag hafi borist tilkynning um umferðarslys á Hringvegi við Neslönd í Mývatnssveit. Bifreið með tvo aðila innanborðs hafi lent út af þjóðveginum. Viðbragðsaðilar frá Þingeyjarsveit, Húsavík og Akureyri hafi farið á vettvang.

Annar aðilinn sé talinn alvarlega slasaður og notast hafi verið við björgunarklippur við að ná viðkomandi út úr bifreiðinni. Fyrir skömmu hafi þyrla Landhelgisgæslunnar flutt aðilana af vettvangi til aðhlynningar á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Unnið sé að rannsókn slyssins.

Vegna vinnu á vettvangi geti orðið umferðartafir um Hringveg norðan og vestan við Mývatn fram eftir degi. Vegfarendum sé bent á veginn austan og sunnan við Mývatn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Miðflokkurinn í Kópavogi vill láta fjarlægja regnbogafána við alla skóla í bænum

Miðflokkurinn í Kópavogi vill láta fjarlægja regnbogafána við alla skóla í bænum
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Arnór greinir frá uppákomu á aðalfundi KFUM og KFUK – Tveir menn vildu útiloka sum börn frá sumarbúðum

Arnór greinir frá uppákomu á aðalfundi KFUM og KFUK – Tveir menn vildu útiloka sum börn frá sumarbúðum
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Albani ákærður fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti á Akureyri

Albani ákærður fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti á Akureyri
Fréttir
Í gær

Vísað frá Íslandi – Leitaði ráða hjá gervigreind um hvernig svara ætti lögreglu

Vísað frá Íslandi – Leitaði ráða hjá gervigreind um hvernig svara ætti lögreglu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum