
Á Facebook er varað við manni sem virðist stunda þá iðju að leigja, eða þykjast leigja út, sumarbústaði sem hann í raun hefur ekki umráð yfir og getur því ekki afhent. Reynir hann að fá viðskiptavini til að greiða tryggingagjald og jafnvel alla leiguna áður en bústaðurinn er afhentur, en síðan verður ekkert af afhendingu eða endurgreiðslu.
Kona ein sem baðst undan því að verða nafngreind í umfjöllun DV um málið, birti eftirfarandi færslu um manninn í hópnum „Þjófar á Íslandi“:
„Langar bara að vara ykkur við þessum manni.
Við fjölskyldan óskuðum eftir bústað fyrir helgi í Mars og þessi einstaklingur hafði samband vip mig og bauð okkur að leigja hjá sér.
Ég borgaði honum tryggingu ekkert mál en nokkrum dögum seinna vildi hann að eg myndi borga restina fyrir „bókhaldið“ ?
Ég vildi ekki borga þá, enda tæpur mánuður í helgina okkar.
Þegar það voru tveir dagar í brottför hafði hann samband til að staðfesta að við kæmum sem ég geri og í góðri trú geng ég frá restinni af greiðslunni.
Strax daginn eftir sendir hann mer skilaboð að það hafi farið lögn og við getum ekki farið í bústaðinn.
Ég er búin að biðja hann um að endurgreiða okkur fyrir bústaðinn í heilann mánuð núna og alltaf lofar hann öllu fögru en svo kemur ekkert nema lélegar afsakanir.
Gleðilega páska“
Konan birtir síðan skjáskot af textaspjalli sínu við hinn meinta svikahrapp sem einkennast af stöðugum loforðum og undanbrögðum hans.
Í umræðum undir færslunni segjast fleiri hafa orðið fyrir barðinu á manninum og að stofnaður hafi verið sérstakur Facebook-hópur sem fjallar eingöngu um sviksama viðskiptahætti hans. Einn maður segist hafa greitt tryggingu vegna leigu á bústað í Grímsnesi en svo kom í ljós að svikahrappurinn hafði ekki umráð yfir bústaðnum. Segist hann hafa kært málið til lögreglu og það sé nú rannsakað sem auðgunarbrot.