fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fréttir

Síbrotakona loksins borin út úr Bríetartúni – „Ég trúi því varla að þetta sé búið“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 5. apríl 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um árabil hafa verið birtar fréttir um ófremdarástand í fjölbýlishúsi í eigu Félagsbústaða við Bríetartún vegna framferðis eins íbúans þar, rúmlega þrítugrar konu. Hún hefur verið margásökuð um þjófnaði, gegndarlaus skemmdarverk, hávaðaónæði og ofbeldi. Síðastliðið vor komst DV yfir gögn sem sýndu að þá var yfirvofandi útburður á konunni úr húsinu. Sá útburður fór loksins af stað um nýliðin mánaðamót en undanfarna daga hafa eigur konunnar verið flutt úr úr íbúðinni.

Konan greindi sjálf frá því í lokaðri Facebook-færslu að hún væri að missa umrætt húsnæði og kenndi þar um fréttaflutningi DV af sínum málum, sem hún segir rangan. Félagsbústaðir hafi þar lagt trúnað á röng skrif. Af færslu konunnar má ráða að hún sé að lenda á götunni vegna útburðarins en heimildir DV herma að henni hafi verið úthlutað smáhýsi úti á Granda, sem borgin rekur sem úrræði fyrir heimilislausa.

Sjá einnig: Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Aðrir íbúar í húsinu hafa barist fyrir brottflutningi konunnar í mörg ár enda telja þeir sig hafa orðið fyrir miklu ónæði, ógnum, skemmdarverkum og þjófnuðum af hennar völdum síðustu árin.

Íbúarnir geta vart lýst fögnuði sínum yfir því að þessi vægast sagt erfiði nágranni sé loksins á förum og einn sagði við DV: „Ég trúi því varla að þetta sé búið.“

Sjá einnig: Pétur Geir var barinn með kúbeini og hamri í Bríetartúni – „Þetta var morðtilraun“

Konan hefur margoft verið sökuð um alvarlegt ofbeldi en fæst málanna gegn henni hafa orðið að lögreglukærum, hvað þá ákærum, og kann þar að valda veik staða brotaþola.

Maður nafni Pétur Geir Óskarsson greindi DV frá því í fyrra að konan hefði sturtað ofan í sig sterkum lyfjum og barið sig með kúbeini og hamri. „Þetta var morðtilraun,“ sagði Pétur Geir en hann komst undan árásarkonunni við illan leik.

Stórslösuð eftir að hafa verið hrint fram af svölum

Í áðurnefndri Facebook-færslu rifjar konan á brotakenndan hátt líkamsárás sem hún varð sjálf fyrir haustið 2019 en maður henti henni ofan á svölum á annarri hæð í blokk í Breiðholti. Lenti hún á andlitinu og hlaut af heilaskaða, heilablæðingu, tannskaða, kjálkabrot, mjaðmarbrot og fleiri áverka. Hefur konan aldrei náð sér af þessari hrottalegu árás en fékk aðeins 1,8 milljónir króna í skaða- og miskabætur. Árásarmaðurinn var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Landsrétti árið 2022.

Samkvæmt heimildum DV hafa flutningar konunnar úr Bríetartúni gengið hægt fyrir sig en mjög friðsamlega. Starfskonur frá Félagsþjónustu Reykjavíkurborgar hafa hjálpað henni að pakka niður og borið út fyrir hana húsgögn. Nágrannar telja að ástæða fyrir friðsamlegum viðbrögðum konunnar séu sú að henni hefur verið úthlutað annað húsnæði. Nágrannarnir vonast jafnframt til þess að meiri friður verði í húsinu en þeir hafa búið við undanfarin ár.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Einar segir menntun Helgu Völu vera fjárfestingu en ekki gjöf – Gagnrýnir Konráð hagfræðing harðlega

Einar segir menntun Helgu Völu vera fjárfestingu en ekki gjöf – Gagnrýnir Konráð hagfræðing harðlega
Fréttir
Í gær

Vopnahléið hangir á bláþræði og heimurinn heldur niðri í sér andanum

Vopnahléið hangir á bláþræði og heimurinn heldur niðri í sér andanum