fbpx
Fimmtudagur 16.apríl 2026
Fréttir

Hvetur fólk til að búa sig undir óveðrið á morgun

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 5. apríl 2026 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Siggi Stormur, Sigurður Þór Ragnarsson, hvetur fólk til að nota daginn í dag til að búa sig undir óveðrið sem gengur yfir landið suðvestan- og austantil á morgun, annan í páskum.

Hann hvetur fólk sem dvelst í orlofshúsum yfir páskana til að huga að heimferð í dag, en ekki bíða til morguns.

Hann birti eftirfarandi pistil um óveðrið á Facebook-síðu sinni í gærkvöld:

„NÚ ER ÁSTÆÐA AÐ HUGA AÐ VEÐRI

Mikil illviðrislægð er nú í þróun suðvestur eða suður af landinu sem tekur land hér á annan í Páskum, einkum þegar líða tekur á daginn og fyrst suðvestanlands. Vert er að gefa þessari lægð gaum því henni fylgir bæði mikill vindur og mikil ofankoma með tilheyrandi hrakviðri. Án nokkurs efa myndi ég ráðleggja fólki að nota morgundaginn (Páskasunnudag) til að gera „sjóklárt“ og huga að umhverfi sínu enda má með því koma í veg fyrir viðeigandi vindavandamál og færðarvandamál.

Góðu fréttirnar eru að morgundagurinn, Páskadagur sjálfur verður góður langt fram á kvöld. Það er því tilvalið fyrir þá sem eru í orlofshúsum að huga að heimferð á morgun fremur en bíða með það fram á mánudag.

Óveðrinu munu menn finna fyrir eftir hádegi á mánudag en framan af þeim degi verður þetta nokkuð skaplegra. Kortið hér að neðan gildir á mánudagskvöld.

Heimild: ECMWF“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Salmonella fannst í hamborgara

Salmonella fannst í hamborgara
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Vala sat yfir deyjandi móður sinni og var svo handtekin

Vala sat yfir deyjandi móður sinni og var svo handtekin
Fréttir
Í gær

Þingkona og nágrannar hennar biðu ósigur gegn Reykjavíkurborg

Þingkona og nágrannar hennar biðu ósigur gegn Reykjavíkurborg
Fréttir
Í gær

Heimir Már afþakkaði boð í Silfrið: „Ég sá þetta sjálfur og mér brá svolítið“

Heimir Már afþakkaði boð í Silfrið: „Ég sá þetta sjálfur og mér brá svolítið“