fbpx
Fimmtudagur 16.apríl 2026
Fréttir

Vanþekking keppenda í Gettu betur veldur hneykslan – „Ég varð fyrir miklum vonbrigðum“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 4. apríl 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vanþekking keppenda í undanúrslitaviðureign í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, á því eftir hvern hinn ódauðlegi útfararsálmur Allt eins og blómstrið eina er olli töluverðri hneykslan meðal fólks sem flest er nokkuð eldra en keppendurnir. Töldu þau sem til máls tóku þetta bera vitni um bæði hnignun menntakerfisins og lítil tengsl ungra Íslendinga við sögu landsins og kristna trú.

Það er Una Margrét Jónsdóttir dagskrárgerðarkona á Rás 1 sem gerði þetta að umtalsefni í pistli á Facebook. Taldi hún þetta vera eitthvað sem lið sem væru komin svona langt í keppninni ættu að vita:

„Ég verð að segja að ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég horfði á „Gettu betur“ í dag. Bæði liðin héldu því fram að „Allt eins og blómstrið eina“ væri eftir Jónas Hallgrímsson, og það þótt þau fengju margar vísbendingar með sálminum. Og þetta eru lið sem eru komin langt, annað liðið fer meira að segja í úrslit!“

Eins og margir lesendur án efa vita er Allt eins og blómstrið eina eftir Hallgrím Pétursson en sálmurinn er líka þekktur undir heitinu Um dauðans óvissa tíma.

Vísbendingar

Una Margrét vísar til viðureignar Menntaskólans á Egilsstöðum og Verslunarskóla Íslands í undanúrslitum Gettu betur sem sýnd var á RÚV að kvöldi skírdags og síðan endursýnd í gær föstudaginn langa.

Sálmurinn var viðfangsefni einnar af bjölluspurningum keppninnar. Spurningin hófst á því að sagt var frá útför Davíðs Oddssonar, fyrrum forsætisráðherra, í síðasta mánuði og sýndar myndir af söng karlakórsins Fóstbræðra í útförinni. Helga Margrét Höskuldsdóttir spyrill keppninnar tjáði keppendum að þarna mætti sjá og heyra flutning á sálmi sem sunginn hefði verið við útfarir á Íslandi í um 350 ár. Var síðan skipt yfir í myndir af Hvalsneskirkju, sem er skammt frá Sandgerði, og sagði Helga Margrét að höfundur sálmsins hefði verið prestur í kirkjunni á 17. öld en, án þess þó að nefna kirkjuna á nafn. Sagði hún að talið væri að höfundurinn hefði ort sálminn eftir dauða barnungrar dóttur sinnar.

Bætti Helga Margrét því við að nærri kirkjunni mætti finna legstein sem lagður hefði verið yfir leiði stúlkunnar. Talið væri að faðir hennar, maðurinn á bak við sálminn, hefði sjálfur höggvið steininn. Sagði hún að í sálminum „um dauðans óvissa tíma“ væri dauðanum líkt við sláttumann.

Jónas

Þegar þarna var komið við sögu við lestur spurningarinnar hringdi lið Verslunarskóla Íslands bjöllunni og sagði höfundinn vera Jónas Hallgrímsson. Keppandinn sem svaraði sagði sálminn titlaðan Um dauðans óvissa tíma en væri líka þekktur undir öðru heiti:

„Æ, það er eitthvað minnst á blóm í þessu.“

Þar sem bjöllunni var hringt áður en lokið var við að lesa spurninguna var ekkert annað að gera en að giska á um hvað annað væri hugsanlega spurt og fór því keppandinn næst að segja frá ferli Davíðs Oddssonar. Þegar ljóst var að rétta svarið væri ekki að koma hélt Helga Margrét áfram með lestur spurningarinnar. Sagði hún að í sálminum væri dauðanum líkt við sláttumann sem hlífði engum.

Vitnaði hún síðan beint í sálminn en í tilvitnuninni kom orðið blómstrið fyrir. Sagði hún það alþjóðlega myndlíkingu að líkja dauðanum við sláttumann og kæmi sú líking til að mynda fyrir í mörgum kvikmyndum og myndlistarverkum. Spurt var loks hver hefði ort þennan sálm Um dauðans óvissa tíma eða Allt eins og blómstrið eina og um tvö heiti á áhöldum sem notuð voru af sláttumönnum í margar aldir.

Menntaskólinn á Egilsstöðum svaraði því einnig að sálmurinn væri eftir Jónas Hallgrímsson og sagði að áhöldin hafi heitið orf og ljár. Fyrra svarið var rangt en það síðara rétt.

Útför

Taldi Una Margrét eins og áður segir að lið sem væru komin svona langt í keppninni ættu að vita betur. Benti hún á að liðin hefðu fengið töluvert af vísbendingum. Fram kom að sálmurinn hefði verið sunginn við útfarir í meira en 350 ár. Jónas Hallgrímsson fæddist fyrir 219 árum. Hann átti enn fremur engin börn og var heldur aldrei prestur eins og fram kom í öðrum vísbendingum um höfund sálmsins.

Margir tóku undir með Unu Margrét um að það væri hryggilegt að keppendur í Gettu betur og sérstaklega þeir sem væru komnir svona langt í keppninni vissu ekki hver hefði ort sálminn:

„Hefur þetta unga fólk aldrei verið viðstatt jarðarför, þar sem þessi fallegi sálmur Hallgríms er sungin í næstum hvert skipti?“

Viðkomandi var þá bent á að þeim útförum þar sem sálmurinn væri sunginn færi fækkandi og einnig að hafa yrði í huga í þessu samhengi ungan aldur keppendanna:

„Gæti trúað að fólk sem tekur þátt í Gettu betur, fólk undir tvítugu, hafi ekki upplifað margar jarðarfarir. Sum kannski enga. Vonandi að sem fæst á þeim aldri hafi þurft að ganga í gegnum slíka reynslu.“

Trú

Í sumum svörum var bent á minnkandi tengsl ungra Íslendinga við kristindóminn:

„Kemur ekki á óvart. Unglingar í dag hafa engar forsendur til að geta tengt við trúarlegar bókmenntir þjóðarinnar. Engin kristinfræðikennsla í grunnskólum, takmörkuð fermingarfræðsla og heilt ár klipið af framhaldsskólanum. Páskar eru haldnir í skíðabrekkum heima eða erlendis og stór hluti þjóðar sólar sig á Tene eða spókar sig á golfvöllum Spánar. Páskafrí er tími skemmtiferða og hefur lítið trúarlegt gildi hjá nútíma Íslendingum. Kaþólsku kirkjunni á Íslandi vex hins vegar fiskur um hrygg því útlendingar eru stórum meirihluta kristnir og rækja trú sína. Þetta er sorgleg staðreynd íslensku þjóðarinnar.“

Einnig var menntakerfinu kennt um:

„Hallgrímur hefur víða í framhaldsskólum lent í niðurskurðinum. Of erfitt og kennararnir illa menntaðir í sögu og trúarbrögðum. Guð nútímans býr í Kísildalnum og skapar sýndarveruleika og vélmenn.“

„Það hlaut að skila sér, þegar nám til stúdentsprófs var stytt um fjórðung.“

Egill Helgason sjónvarpsmaður lýsti hneysklan sinni með afar stuttorðum hætti:

„Nei!“

Það sama má segja um Pál Valsson rithöfund og bókaútgefanda sem hefur meðal annars skrifað ævisögu Jónasar Hallgrímssonar:

„Ja, hérna.“

Vita

Hluti þeirra sem tók þátt í umræðunni vildi hins vegar bera blak af unga fólkinu til að mynda Trausti Jónsson veðurfræðingur:

„Það er svo margt sem við „ættum“ að vita – en vitum auðvitað ekki – við skulum því ekki hneykslast um of – einn daginn föllum við líka á prófi á „skammarlegan“ hátt. Þetta vitlausa svar var þó úr „réttu“ mengi.“

Aðrir tóku hins vegar undir það með Unu Margréti að það væri eðlilegt að gera ákveðnar kröfur um lágmarks þekkingu á íslenskum bókmenntum til menntaskólanema sem væru komnir á lokastig Gettu betur. Þar á meðal voru Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur:

„Maður á að vita eftir hvern Allt eins og blómstrið eina er, ef maður er kominn þetta langt í þessari keppni.“

Jón Viðar Jónsson rithöfundur og leikhúsgagnrýnandi taldi Trausta sýna helst til mikið umburðarlyndi:

„Nú verð ég að segja að þú gengur aðeins of langt í umburðarlyndinu fyrir minn smekk – og er ég vissulega með umburðarlyndustu mönnum sem ég þekki!“

Uppfært kl. 15:55

Una Margrét segir frá því í nýrri færslu að keppandinn sem svaraði spurningunni fyrir hönd Verslunarskóla Íslands hafi haft samband við hana og greint henni frá því að liðsmenn hafi vitað að Halllgrímur Pétursson samdi sálminn en hafi í þeirri taugaspennu sem ríkt hafi nefnt vitlaust nafn. Una Margrét segir það vissulega breyta málinu og sér þyki leitt ef skrif hennar hafi sært einhvern.

Hún andmælir hins vegar þeim gagnrýnisröddum sem segi hana hafa verið með árásir á unglinga. Hún hafi einfaldlega lýst yfir vonbrigðum en ekki verið með neinn dónaskap. Það sé hluti af því að þroskast að geta tekið gagnrýni en það eigi að sjálfsögðu ekki við illgirni og dónaskapþ

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Salmonella fannst í hamborgara

Salmonella fannst í hamborgara
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Vala sat yfir deyjandi móður sinni og var svo handtekin

Vala sat yfir deyjandi móður sinni og var svo handtekin
Fréttir
Í gær

Þingkona og nágrannar hennar biðu ósigur gegn Reykjavíkurborg

Þingkona og nágrannar hennar biðu ósigur gegn Reykjavíkurborg
Fréttir
Í gær

Heimir Már afþakkaði boð í Silfrið: „Ég sá þetta sjálfur og mér brá svolítið“

Heimir Már afþakkaði boð í Silfrið: „Ég sá þetta sjálfur og mér brá svolítið“