
„Bandaríkin hafa framið voðaverk á hafi úti, 2.000 mílum frá ströndum Írans. Freigátan Dena, sem var gestur indverska sjóhersins og með nærri 130 sjómenn um borð, varð fyrir árás án viðvörunar á alþjóðlegu hafsvæði,“ skrifaði Abbas Araqchi á samfélagsmiðilinn X og bætti við:
„Takið mark á orðum mínum: Bandaríkin munu sjá mjög eftir því fordæmi sem þau hafa skapað.”
Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að skipið hefði talið sig vera á öruggu hafsvæði. „Í staðinn var því sökkt með tundurskeyti – Quiet Death. Þetta er í fyrsta sinn síðan í seinni heimsstyrjöldinni sem óvinaskipi er sökkt með tundurskeyti,“ sagði Hegseth. „Líkt og í þeirri styrjöld berjumst við til sigurs,“ bætti hann við.
Pentagon birti ótrúlegt myndband af árásinni sem sýndi skipið verða fyrir mjög öflugri sprengingu sem reif aftari hluta þess í sundur. Höggið frá sprengingunni lyfti skipinu upp og byrjaði það að sökkva skömmu síðar.
Mark 48-tundurskeytið sem var notað í árásinni er háþróað og kostar hvert skeyti um 4,2 milljónir dollara, að því er segir í umfjöllun New York Post.
Sjóher Sri Lanka fann 87 lík eftir árásina en 32 skipverjum var bjargað. Buddhika Sampath, talsmaður sjóhers Sri Lanka, sagði að engin merki hefðu verið um skipið þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang, aðeins olíublettir og björgunarbátar.
„Við fundum fólk fljótandi í sjónum,“ sagði hann en skipstjórinn og nokkrir háttsettir yfirmenn voru meðal þeirra sem lifðu af.
IRIS Dena var á leið aftur til Írans frá hafnarborg í austurhluta Indlands þegar það varð fyrir árásinni, að sögn aðstoðarutanríkisráðherra Sri Lanka. Skipið hafði tekið þátt í heræfingu sem Indland stóð fyrir á tímabilinu 18. til 25. febrúar.