fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fréttir

Reykjavíkurborg óskar eftir þátttöku íbúa: „Við viljum læra meira um hvernig þú lítur á borgina“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 5. mars 2026 12:46

Séð yfir Holtin í átt að Kjarvalsstöðum og flugvallarsvæðinu. Mynd: Reykjavíkurborg.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavíkurborg óskar nú eftir þátttöku íbúa og leitar svara við venjun og hindrunum þeirra þegar kemur að samgöngum og flokkun úrgangs. Um er að ræða spurningakönnun í samstarfi við Háskóla Íslands og er könnunin hluti af rannsókn um samgöngur og flokkun úrgangs.

„Við viljum læra meira um hvernig þú lítur á borgina. Markmið könnunarinnar er að skilja hvernig þú upplifir borgarumhverfið, hvaða samgöngumáta þú notar og hvað mætti bæta í borginni. Með þátttöku getur þú haft áhrif á framtíðaraðgerðir borgarinnar í tengslum við samgöngu- og úrgangsmál í Reykjavík! Þetta er þitt tækifæri til að koma með ábendingar til borgarinnar varðandi þessi málefni.“

Könnunin er ætluð öllum íbúum höfuðborgarsvæðisins 18 ára og eldri, hún er á íslensku, ensku og pólsku og þeir sem taka þátt geta unnið 25.000 kr. gjafakort. Tvenn slík verða dregin út 15. apríl.

„Niðurstöður könnunarinnar verða notaðar í rannsóknir við Háskóla Íslands og til að bæta þætti er varða samgöngur og endurvinnslu á höfuðborgarsvæðinu. Gögnin verða unnin af Háskóla Íslands í samræmi við siðareglur og viðmið fræðilegra rannsókna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Könnun: Viðreisnarfólk hrifið af veggjöldum en Sósíalistar alls ekki

Könnun: Viðreisnarfólk hrifið af veggjöldum en Sósíalistar alls ekki
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Birgir gagnrýnir Heimi Má: „Hann er með þessu að spilla ímynd flokksins“

Birgir gagnrýnir Heimi Má: „Hann er með þessu að spilla ímynd flokksins“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Salmonella fannst í hamborgara

Salmonella fannst í hamborgara
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Vala sat yfir deyjandi móður sinni og var svo handtekin

Vala sat yfir deyjandi móður sinni og var svo handtekin