fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fréttir

Haukur Guðmundsson er látinn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 4. mars 2026 09:39

Haukur Guðmundsson. Mynd: DV/ÁBS

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Haukur Guðmundsson, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður, lést á sjúkrahúsinu Keflavík í gær.

Frá þessu greinir bróðursonur Hauks, fréttamaðurinn Magnús Hlynur Hreiðarsson, á Facebook-síðu sinni.

Samkvæmt heimildum hafði Haukur strítt við veikindi undanfarna mánuði.

Haukur var fæddur 7. júní 1944 á Brekku, í Vogum á Vatnsleysuströnd. Hann bjó mestan hluta ævi sinnar í Keflavík og Njarðvík.

Haukur starfaði meðal annars við rekstur eigin kranabílaþjónustu en þekktastur var hann fyrir störf sín sem rannsóknarlögreglumaður í Keflavík, en hann kom þar meðal annars að rannsókn á hvarfi Geirfinns Einarssonar.

Árið 2010 kom út sjálfsævisaga Hauks Guðmundssonar, 19. nóvember, sem Freyja Jónsdóttir skrásetti.

Haukur ræddi Geirfinnsmálið í viðtali við DV í haustbyrjun 2025, sjá hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Málningarþjónusta stefndi viðskiptavin þegar hann neitaði að greiða tvöfalt það sem um var samið

Málningarþjónusta stefndi viðskiptavin þegar hann neitaði að greiða tvöfalt það sem um var samið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sænskir borgarar verða sóttir til Dubai – Forgangsröðunin gagnrýnd og hvatt til þess að herinn verði sendur

Sænskir borgarar verða sóttir til Dubai – Forgangsröðunin gagnrýnd og hvatt til þess að herinn verði sendur