Helmingur blaðamanna á litlum norskum fréttamiðli er á lista yfir eftirlýsta einstaklinga í Rússlandi og nokkrir þeirra hafa verið dæmdir í margra ára fangelsi. Þrátt fyrir hótanir og ofsóknir rússneskra stjórnvalda neita blaðamennirnir að láta þagga niður í sér.
Breska blaðið The Guardian fjallar um starfsemi Barents Observer, sjálfstæðs fréttamiðils í bænum Kirkenes í Norður-Noregi, skammt frá landamærum Rússlands. Þar starfa meðal annars rússneskir blaðamenn sem hafa flúið heimaland sitt vegna ofsókna stjórnvalda.
Miðillinn sérhæfir sig í fréttum frá norðurslóðum, einkum Norður-Noregi, norðurhluta Rússlands og Barentshafssvæðinu og birtir bæði fréttir á ensku og rússnesku.
Miðillinn er eign blaðamannanna sem þar starfa, er rekinn án hagnaðarsjónarmiða og fjármagnaður meðal annars með framlögum einstaklinga, fyrirtækja og sjóða.
Klippti af sér ökklabandið og flúði
Í frétt The Guardian kemur fram að rússnesk yfirvöld hafi skilgreint miðilinn sem „óæskileg samtök“ og reynt að leggja stein í götu blaðamanna sem vilja afla frétta frá Rússlandi.
Meðal starfsmanna er hin 23 ára gamla Olesia Krivtsova, sem var í júlí dæmd að henni fjarstaddri í sex ára fangelsi fyrir að „réttlæta hryðjuverk“ og „ófrægja“ rússneska herinn.
Krivtsova flúði Rússland árið 2023 eftir að hafa klippt af sér rafrænt ökklaband sem hún þurfti að bera í stofufangelsi. Hún hafði verið ákærð eftir að hafa gagnrýnt innrásina í Úkraínu.
Annar blaðamaður miðilsins, Farida Kurbangaleeva, hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi og nýlega var Denis Zagore, blaðamaður frá Múrmansk, settur á lista yfir eftirlýsta einstaklinga.
„Við erum ógn við hann“
Á skrifstofu Barents Observer hafa starfsmenn komið upp sérstökum vegg með myndum af þeim blaðamönnum sem rússnesk yfirvöld hafa lýst eftir. Með þessu reyna þeir að mæta hótunum og ofsóknum rússneskra yfirvalda með svörtum húmor.
Thomas Nilsen, ritstjóri miðilsins, segir þrýstinginn hafa aukist verulega á undanförnum mánuðum. Hann telur Vladimír Pútín Rússlandsforseta reyna að ná tökum á fjölmiðlaumfjöllun langt út fyrir landamæri Rússlands.
„Við höldum því fram að Pútín sé ekki ógn við okkur. Við erum ógn við hann. Frjáls og óháð blaðamennska er ógn við sérhvert einræði,“ segir Nilsen.
Krivtsova segir að blaðamenn í útlegð geti hvergi verið fullkomlega öruggir fyrir rússneskum yfirvöldum.
„Það skiptir rússnesku leyniþjónustuna engu máli hvar þú ert. Það skiptir engu hvort þú ert í Kirkenes, Ástralíu eða einhvers staðar annars staðar.“
Hún lýkur máli sínu með óhugnanlegum orðum:
„Ef þeir vilja drepa þig, eitra fyrir þér eða ræna þér, þá munu þeir finna þig.“