Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu-réttindafélags, varð fyrir óvæntri og óþægilegri lífsreynslu þegar hann var á ferð í úkraínsku borginni Lviv á dögunum.
Fimm grímuklæddir herlögreglumenn stukku skyndilega út úr sendibifreið, stöðvuðu hann á götu úti og kröfðu hann svara um ferðir sínar og hvort hann hefði undanþágu frá herskyldu.
Guðmundur Ingi segir frá atvikinu í pistli á Vísi, en hann dvaldi í átta daga í Úkraínu vegna framsalsmáls einstaklings til Úkraínu sem hann hafði verið fenginn til að koma að.
„Ég var þar einn á gangi um miðjan dag þegar fimm grímuklæddir herlögreglumenn spruttu skyndilega út úr sendibifreið og stöðvuðu för mína. Hastarlega kröfðu þeir mig svara um ferðir mínar og hvort ég hefði undanþágu frá herskyldu. Sem betur fer gat ég sýnt fram á að ég væri Íslendingur og fékk þá að halda áfram með daginn.“
Hvað ef hann hefði verið Úkraínumaður?
Guðmundur Ingi segir að þótt atvikið hafi gengið fljótt yfir hafi það setið í honum. Hann hafi ekki getað hætt að hugsa um hvað hefði gerst ef hann hefði verið úkraínskur karlmaður á herskyldualdri.
„Hefði ég fengið að halda áfram eða hefði mér verið gert að fylgja herlögreglumönnunum og við tæki ferli sem gæti endað með herþjónustu á víglínunni?“
Á meðan dvöl hans stóð þurfti hann ítrekað að leita skjóls í kjallara hótels síns vegna loftvarnaviðvarana. Þrátt fyrir stríðsástandið hafi hversdagslífið haldið áfram í borginni, kaffihús verið opin og fólk sinnt störfum sínum.
Hann segist þó hafa fundið fyrir miklum ótta og vantrausti í samtölum við heimamenn. Fólk hafi meðal annars sagt honum að fjármunir og tengsl gætu ráðið því hver kæmist undan herþjónustu og hver yrði sendur á víglínuna.
„Nefndar voru greiðslur upp á tugi þúsunda evra. Ég gat ekki sannreynt einstök tilvik eða fjárhæðir en áhyggjur fólks af ójafnri stöðu voru skýrar.“
Gagnrýnir breytingar á íslenskum reglum
Guðmundur Ingi tengir reynslu sína við breytingar sem íslensk stjórnvöld kynntu í ágúst á reglum um sameiginlega vernd fyrir fólk frá Úkraínu.
Samkvæmt þeim þurfa einstaklingar sem yfirgáfu Úkraínu eftir 23. ágúst að sýna fram á að þeir hafi haft heimild úkraínskra stjórnvalda til brottfarar, með tilliti til skyldna gagnvart her landsins, til að geta fengið sameiginlega vernd hér á landi. Breytingarnar ná ekki til þeirra sem þegar njóta slíkrar verndar og áfram er hægt að sækja um alþjóðlega vernd á öðrum grundvelli.
Guðmundur Ingi óttast að reglurnar geti aukið ójöfnuð og bitnað sérstaklega á þeim sem hafa hvorki fjármuni né tengsl til að komast undan herþjónustu.
„Ef þeir sem eiga peninga og tengsl eru undanþegnir á meðan hinir efnaminni sæta sjálfkrafa kalli verður aðgangur að vernd háður aðstæðum sem fólk hefur litla stjórn á. Það er ekki niðurstaða sem við eigum að sætta okkur við.“
Hann tekur fram að Úkraína eigi fullan rétt á að verja sig gegn innrás Rússa, en það þýði ekki að framkvæmd herskyldu eigi að vera undanþegin gagnrýni.
Fór til Úkraínu vegna framsalsmáls
Tilefni ferðar Guðmundar Inga var framsalsmál einstaklings til Úkraínu sem fyrr segir og upplýsingar um aðstæður og meðferð fanga í fangelsisstofnun númer 19. Leitað hafði verið til hans vegna starfa hans fyrir Afstöðu.
Hann þakkar utanríkisráðuneytinu og Friðriki Jónssyni sendiherra sérstaklega fyrir aðstoð vegna málsins.
Guðmundur Ingi segir að stuðningur Íslands við Úkraínu eigi ekki eingöngu að felast í aðstoð vegna stríðsins, heldur einnig í því að standa vörð um mannréttindi og styðja við fólkið sem þar býr.
„Samstaða okkar með Úkraínu felst í því að standa með fólkinu sem þar býr. Hún verður líka að ná til þeirra sem óttast herþjónustu, gagnrýna stjórnvöld eða hafa hvorki fjármuni né tengsl til að öðlast öryggi.“
Hann lýkur pistlinum á afdráttarlausum orðum:
„Mannréttindi mega ekki verða forréttindi þeirra efnameiri.“