Fréttir

Forseti Alþingis ómyrk í máli: „Reykjavík sé að verða eins og Bangkok norðursins“

Mynd
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Þórunn Sveinbjarnardóttir, Mynd: DV/KSJ

„Við þekkjum ekki alltaf umfangið en okkur er sagt að á hverjum tíma séu tugir tilboða í Reykjavík og úti á landi um vændi. Fólk er flutt til landsins til þess að stunda vændi, það sé mjög skipulagt. Ég hef heyrt að Reykjavík sé að verða eins og Bangkok norðursins, það er mjög auðvelt að nálgast vændi,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis og þingmaður Samfylkingarinnar. 

Frumvarp sem á að taka á sérmeðferð vændiskaupenda

Þórunn tók til máls á Alþingi í vikunni um frumvarp Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um breytingar á vændisákvæði hegningarlaga á Alþingi í vikunni. Frumvarpinu er ætlað að draga úr eftirspurn eftir vændi, sporna gegn mansali í kynferðislegum tilgangi og taka fast á skipulagðri brotastarfsemi og kynferðisbrotum, en sambærileg breyting var gerð á sænsku hegningarlögunum á síðasta ári.

Í frumvarpinu er lagt til að sektir verði afnumdar sem refsing fyrir vændiskaup. Þannig verði ekki lengur heimilt að ljúka vændiskaupamálum með lögreglustjórasekt, heldur leiði þau til útgáfu ákæru og dómsmáls.

„Vændiskaupendur hafa hingað til notið ákveðinnar sérmeðferðar innan réttarvörslukerfisins og getað sloppið með sekt fyrir brot sín. Það er óásættanlegt. Við vitum að vændi og mansal eru nátengd og verðum að beina sjónum að eftirspurninni sem heldur starfseminni gangandi,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í tilkynningu.

Vændiskaup hafa verið refsiverð á Íslandi frá árinu 2009 og hingað til hefur fyrstu vændiskaupabrotum að jafnaði lokið með 200 þúsund króna lögreglustjórasekt. Breytingarnar árið 2009 voru gerðar til að hætt verði að refsa þeim sem selja vændi, þess í stað að refsa þeim sem kaupir vændi. 

Að mati lögreglu er vændi að mestu drifið áfram af skipulagðri brotastarfsemi og grunur er að stór hluti kvenna sem auglýstar eru í vændi séu þolendur mansals. Í greinargerð með frumvarpinu er lögð áhersla á að eftirspurn eftir vændi sé ein helsta forsenda þess að mansal og kynferðisleg hagnýting þrífist. Með því að draga úr eftirspurninni sé því jafnframt unnið gegn skipulagðri brotastarfsemi og misneytingu fólks í viðkvæmri stöðu.

Sjá einnig: Logn segir áform Þorbjargar hræðileg:„Kúnnar eru stærsti hlutinn af þeim sem að tilkynna mansalsaðstæður“

Frumvarpið hefur fengið gagnrýni frá samtökum aktivista sem berjast fyrir öryggi og réttindum fólks í kynlífsvinnu á Íslandi. Logn Blómdal hjá Rauðu regnhlífinni sagði í ágúst síðastliðnum að öll glæpavæðing á vændi bitni á þeim sem standa verst, þar á meðal þolendum mansals. „Það gerir allt svo miklu erfiðara, erfiðara að greina frá hver er mansalsþolandi og hver ekki,“ segir Logn. „Kúnnar eru stærsti hlutinn af þeim sem að tilkynna mansalsaðstæður til lögreglu. Sem er ekki hægt hér því þú ert glæpavæddur.“

Óþægilegt að horfast í augu við að vændiskaupendur séu venjulegir fjölskyldufeður

Þórunn segir í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun að með núverandi refsingum myndist ákveðið skjól fyrir vændiskaupendur. „Það hefur verið þannig að nöfn hafa ekki verið birt. Þinghald hefur verið lokað og í rauninni myndast þetta skjól,“ segir hún. Með þessum breytingum verði tryggður fælingarmáttur og viðurkenna alvarleika þess að kaupa vændi, hún er ómyrk í máli um þennan málaflokk. „Vandinn í þessum ógeðfellda málaflokki er eftirspurnin. Vandinn er ekki að manneskja neyðist út í að þurfa að selja líkama sinn. Vandinn er að það er eftirspurn eftir aðgengi að líkama annarra gegn greiðslu.“

Það séu ýmsar mýtur í gangi um vændi úti í samfélaginu, þar sem sé vændi þar sé mansal og öfugt. Þetta sé meðal annars gert til að sporna gegn skipulagðri glæpastarfsemi sem sé orðin algeng hér á landi. Þórunn segir að gerður sé greinarmunur á þolendum mansals og kynlífsverkafólks. „Ég geri ráð fyrir að sá eða sú sem selur vinnuna segist vilja gera það þá sé að rannsakað, það þarf að komast að því hvort það sé satt, er það þannig? Það er alveg rétt að kynlífsverkafólk svokallað segist vera gerendur í sínu og það kann alveg að vera, við eigum öll rétt á vernd. En það eru bara svo örfá tilvik.“

Stóra málið sé að í flestum tilfellum sé ekki verið að „veita þjónustu“ af fúsum og frjálsum vilja. Kynlífsverkafólk sé undantekning. „Í grunninn erum við að tala um valdakerfi, það er ekki jafnræði á milli fólks. Þegar fólk stundar kynlíf þá er jafnræði á milli fólks. Það á allavega að vera þannig í samböndum þar sem fólk sýnir hvoru öðru virðingu. Hér er verið að kaupa aðgengi að annarri manneskju, það býr til valdaójafnvægi.“

Það þurfi að horfast í augu við það sem sé að gerast á Íslandi í dag. „Við þurfum að horfast í augu við það að í okkar samfélagi er mjög mikil eftirspurn eftir líkama annarrar manneskju og menn eru tilbúnir til að greiða fyrir það. Þetta eru ekki einhverjir, veit ekki hvernig ég á að orða það, þetta eru venjulegir fjölskyldufeður sem eru í þessu. Það er svo óþægilegt að horfast í augu við það.“