Arinbjörn Jóhannsson, bóndi og frumkvöðull í ferðaþjónustu á Brekkulæk í Miðfirði, er látinn 76 ára að aldri. Arinbjörn þann 29. október síðastliðinn.
Skessuhorn greindi frá andláti hans í gærmorgun og Morgunblaðið í dag.
Arinbjörn fæddist 5. mars árið 1950 og ólst upp á Brekkulæk. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og eftir það lagði hann stund á nám í Freiburg og síðar Köln í Þýskalandi.
Árið 1978 hóf hann að bjóða þýskumælandi ferðamönnum upp á hestaferðir á Arnarvatnsheiði þar sem gist var í gangnamannaskálum.
Ári síðar stofnaði hann ferðaskrifstofuna Ferðir/Erlebnistouren ásamt fyrri sambýliskonu sinni, Gudrun M.H. Kloes. Þá byggði hann fæðingarbæ sinn á Brekkulæk upp og breytti honum í gistihús. Þaðan rak hann ferðaþjónustufyrirtæki sem bauð meðal annars upp á hesta- og gönguferðir um Norður- og Vesturland.
Arinbjörn lætur eftir sig eiginkonu, þrjú börn og þrjú barnabörn.