Hinn gríski Georgios Ntentes var sýknaður af ákæru um morðið á Edilsson Martin Zingara í Kópavogi þar sem meirihluti Héraðsdóms Reykjaness taldi ekki sannað hafið yfir skynsamlegan vafa að hann hefði orðið honum að bana.
Dómurinn, sem féll í morgun, hefur nú verið birtur opinberlega. Athygli vekur að einn þriggja dómenda, Þorsteinn Davíðsson héraðsdómari, var ósammála niðurstöðunni og taldi ákæruvaldið hafa sannað sekt Georgios.
Blóð og skóför á vettvangi
Georgios var ákærður fyrir að hafa ráðist á Edilsson á heimili hans við Skjólbraut að kvöldi 28. nóvember í fyrra og veitt honum fjölmarga stungu- og skurðáverka sem leiddu til dauða hans. Edilsson fannst látinn 30. nóvember en Georgios hefur staðfastlega neitað sök í málinu.
Við rannsókn málsins fundust sönnunargögn sem tengdu Georgios við vettvanginn. Meðal þeirra voru blóðsýni sem tengdust honum og fundust á nokkrum stöðum í íbúðinni, meðal annars á baðherbergi, veggjum og hnífi. Þá fundust blóðug skóför eftir Nike- og Adidas-skó af sömu eða mjög svipaðri gerð og Georgios hafði átt.
Meirihluti dómsins taldi hins vegar ekki hægt að slá því föstu að blóðið hefði borist á vettvang þegar morðið var framið. Georgios hafði verið tíður gestur hjá Edilsson og aðstoðað hann við endurbætur á íbúðinni. Hann hafði jafnframt verið með minniháttar sár og skeinur sem gæti hafa dreyrt úr í íbúðinni.
Skóförin þóttu heldur ekki nægilega afgerandi til að tengja hann við sjálft morðið. Á vettvangi fundust för eftir tvær ólíkar skótegundir, sem að mati dómsins gæti bent til aðkomu tveggja gerenda. Þá benti meirihlutinn á að um væri að ræða algengar skótegundir.
Misvísandi framburður vakti grunsemdir
Framburður Georgios um ferðir sínar kvöldið sem hann heimsótti Edilsson þótti einnig misvísandi. Sérstaklega vöktu athygli ólíkar skýringar hans á því hvað hann hefði gert eftir að hann yfirgaf íbúðina.
Hann hafði meðal annars gefið misvísandi skýringar hjá lögreglu á því hvort hann hefði farið í sund í Sundlaug Kópavogs eða tekið þátt í pókermóti í símanum fyrir utan sundlaugina. Fyrir dómi sagðist hann hins vegar hafa setið í bifreið sinni við sundlaugina og reykt marijúana í stað þess að fara í sund.
Myndupptökur sýndu Georgios við ruslagáma nærri Kjarvalsstöðum að kvöldi 28. nóvember og í Sorpu við Dalveg daginn eftir. Hann sagðist hafa verið að bíða eftir fíkniefnasala í fyrra skiptið en losa sig við dót vegna fyrirhugaðra búferlaflutninga í það síðara.
Þá viðurkenndi hann að hafa hent hvítum Nike-skóm sínum, sem aldrei fundust, en á morðvettvangi fundust blóðug skóför eftir sambærilega skótegund.
Ekki hægt að útiloka aðra atburðarás
Þrátt fyrir þessi grunsamlegu atriði taldi meirihluti dómsins ekki hægt að útiloka aðra atburðarás.
Þar skipti meðal annars máli að ekkert blóð úr Edilsson fannst á haldlögðum fatnaði Georgios eða í bifreið hans, þrátt fyrir að mikið blóð hefði verið á vettvangi. Einnig var horft til þess að Georgios var ekki með áverka sem hægt var að rekja til átaka við Edilsson.
Þá tókst ekki að ákvarða dánarstund Edilsson með nægilegri vissu. Taldi dómurinn að morðið gæti hafa verið framið allt frá föstudagskvöldinu 28. nóvember og fram til miðnættis daginn eftir. Ekkert benti til þess að Georgios hefði komið að heimili hans á laugardeginum.
Dómurinn taldi jafnframt að ekki væri hægt að útiloka að aðrir hefðu komið að morðinu, meðal annars í ljósi tengsla hins látna við fíkniefnaviðskipti.
Meirihluti dómsins taldi að þrátt fyrir ýmis atriði sem bentu til sektar Georgios væru engar beinar sannanir fyrir því að hann hefði myrt Edilsson. Þegar sönnunargögnin væru metin í heild léki slíkur vafi á sekt hans að sýkna bæri hann.
Þorsteinn Davíðsson héraðsdómari komst hins vegar að gagnstæðri niðurstöðu sem fyrr segir og taldi sönnunargögnin nægja til að sakfella Georgios fyrir manndráp.