Fréttir

Ný vísbending í flugslysinu í Flórída – Hvað gerðist síðustu sekúndurnar?

Mynd

Nýjar upplýsingar hafa komið fram við rannsókn á flugslysinu í Flórída á sunnudag, þar sem níu manns fórust þegar Learjet 60-einkaþota steyptist til jarðar.

Hlutar úr stélbúnaði vélarinnar hafa fundist í um sex kílómetra fjarlægð frá slysstaðnum, sem staðfestir að þotan var farin að brotna í sundur áður en hún skall til jarðar.

Tom Chapman, fulltrúi bandarísku samgönguöryggisnefndarinnar (NTSB), greindi frá þessu á blaðamannafundi í gær, að því er AP-fréttastofan greinir frá.

Sjá einnig: Nú er ljóst hverjir fórust í flugslysinu – Börnin aðeins tveggja og fjögurra ára

Um er að ræða hluta af vinstra hæðarstýri þotunnar, sem stjórnar því hvort nef hennar lyftist eða lækkar. Chapman sagði að án hæðarstýrisins hefði flugstjórinn ekki getað náð vélinni upp úr hinu snarpa dýfi hennar.

Enn er þó óljóst hvort stélbúnaðurinn hafi brotnað vegna þeirra gríðarlegu krafta sem verkuðu á þotuna eða hvort bilun í honum hafi átt þátt í því að hún varð stjórnlaus.

John Goglia, fyrrverandi fulltrúi NTSB, telur mögulegt að hlutar stélbúnaðarins hafi rifnað af þegar flugstjórinn reyndi að rétta þotuna af.

Fluggögn benda til þess að vélin hafi náð að rétta sig af í um átta sekúndur í rúmlega 2.400 metra hæð áður en hún steyptist aftur niður.

Sjá einnig: Reyndur flugstjóri varpar ljósi á hvað gæti hafa farið úrskeiðis

Goglia telur að flugstjórinn kunni að hafa reynt að rétta þotuna svo snögglega af að álagið á stélbúnaðinn hafi orðið of mikið og hlutar hans brotnað af.

Veðuraðstæður eru einnig í brennidepli rannsóknarinnar. Rétt áður en þotan varð stjórnlaus tilkynnti aðstoðarflugmaðurinn, hin tvítuga Nathalia Gadelha Filgueiras, um mikla ókyrrð og ísingu á flugvélinni.

„Við erum að fara að brotlenda,“ sagði hún í síðustu fjarskiptum sínum við flugumferðarstjóra.

Skömmu síðar heyrðist hún hrópa: „Við höfum engan tíma eftir!“

Búist er við að bráðabirgðaskýrsla um slysið verði birt eftir um mánuð, en endanleg niðurstaða um orsakir þess gæti legið fyrir eftir meira en ár.