Fréttir

Lára er tilbúin með tösku: „Sem þjóð verðum við bara að vera tilbúin“

Mynd
Lára Zulima Ómarsdóttir. Samsett mynd/Pixabay

„Ég næ þessu ekki, ég las í gær að 30% væru tilbúin, það er algjörlega óskiljanlegt í mínum huga. Af hverju eru ekki öll tilbúin?,“ spyr Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengill en hún hefur lengi átt birgðir af mat og fleiru ef eitthvað kemur upp á, er það tilbúið í tösku sem hún getur alltaf tekið með sér.

Líkt og fram kom í fréttum í gær hafa Almannavarnir sent út bækling þar sem íslensk heimili eru hvött til að eiga nægar birgðir af mat, vatni og öðrum nauðsynjum til að geta komist af í að minnsta kosti þrjá daga án aðstoðar. Þá er landsmönnum ráðlagt að geyma reiðufé heima, eiga rafhlöðuknúið útvarp og búa sig undir að rafmagn, fjarskipti og greiðslukerfi geti legið niðri um tíma.

Markmiðið með því að eiga þetta heima hjá sér er til að vera viðbúin fyrir óvæntum atburðum á borð við náttúruhamfarir, langvarandi rafmagnsleysi, truflunum í fjarskiptakerfum og öðrum alvarlegum áföllum. 

Sjá einnig: Almannavarnir hvetja Íslendinga til að eiga reiðufé og þriggja daga neyðarbirgðir

Veit alltaf hvar prímusinn er

Lára sagði í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun að það séu mörg dæmi til um rafmagnsleysi í einhvern tíma hér á landi, til dæmis árið 2019 þegar rafmagnið fór á Norðausturlandi. „Þá var bara fólk sem bjó í sveitum þar sem vissi ekki hvernig það átti að búa til kaffi og svona,“ segir Lára. Hún er hins vegar alltaf undirbúin. „Ég er alltaf með prímus sem ég veit hvar er.“

Hún er viss um að flest í bæklingnum frá Almannavörnum sé heima hjá fólki. „Þú átt vasaljós líklegast.“ Því hafnaði Guðrún Dís Emilsdóttir þáttastjórnandi en hún á hins vegar mikið af kertum og eldspýtum. „Þú átt örugglega einhverjar dósir af mat, baunir, fiskibollur eða síld eða eitthvað. Kannski er eitthvað í frystinum þínum líka,“ segir Lára. „Svo þarf sjúkrakassa. Þetta þarf ekki að vera stærsti sjúkrakassi í heimi en það þarf að vera plástur, spelka og þrýstiumbúðir, þetta helsta sem maður er með í sjúkrakassanum.“

Lára er með sérstaka tösku fyrir þetta allt saman. „Ég er með lyf, stera, ég veit ekki hvort ég megi segja það en ég er með smá svona… pensilín. Ég veit ekki hvort það má en ég er með það samt í töskunni. Svo er ég með verkjalyf, panódíl, ofnæmislyf sem allir gætu þurft á að halda. Ég er ekki með hjartastuðtæki. Svo er ég með álpoka sem getur komið í staðinn fyrir svefnpoka,“ segir hún. 

„Þetta eru svona nauðsynjar. Peninga, ekki bara íslenskar krónur samt. Eins og staðan er núna eru þær voða verðlausar sumsstaðar í heiminum, ég á evrur. Segjum sem svo að það fari allt rafmagn af landinu, það þarf ekkert stríð til. Ef það væri eldgos í Bárðarbungu og hlaupið fer niður til vesturs í Þjórsá, sem dæmi, þá fer rafmagn af öllu landinu. Þá þarf að slökkva á virkjununum til að verja þær og þá erum við ekki með neitt rafmagn. Það hefur verið talað um það lengi að það væru þrír dagar. Þetta tekur svona þrjá daga til að ná skipulaginu, Almannavarnir að ná utan um atburðinn og vita hvar fólk er, þannig að þrír dagar. Það eru varaaflstöðvar á mörgum sendum og svona en ég veit ekki hvort fólk geri sér grein fyrir því að við, allar verslanir, FM-sendarnir sjálfir, allt gengur fyrir rafmagni. Það er engin landlína heldur lengur, þú þarft að geta verið rafmagnslaus í þrjá daga.“

„Sem þjóð verðum við bara að vera tilbúin“

Þá skiptir líka máli að vera með reiðufé. „Ef að það myndast þannig ástand þá er gott að vera með peninga til að borga fyrir eitthvað. Þess vegna að múta einhverjum til að keyra þig út úr bænum.“

Taskan er ekki stór en þar eru líka litlir púðar og teppi, og rafhlöður. „Og hleðslubanka. Til að geta þá hlaðið símann. Það dugar ekkert voðalega lengi, maður þarf að spara símann sinn svolítið. Ekki bara vera á TikTok, doomscrolling allan daginn. Það þarf að passa svona hluti,“ segir hún. Þá er einnig í töskunni lítill tannbursti, tannkrem og munnskol, einnig blautþurrkur. „Ég nenni ekki að vera með einhverja risastóra tösku eða kassa, ég vil geta gripið þetta ef ég þarf að fara út,“ segir hún. Leggur hún til að fólk hugsi þetta sem bakpoka sem sé tekinn með upp á fjall, einnig mælir hún með að fólk rífi gátlistann út úr bæklingnum og geymi ofan á ísskápnum.

„Sem þjóð verðum við bara að vera tilbúin. Burtséð frá stríði eða ekki. Við verðum að vera undirbúin að gjósi nálægt okkur eða aðrar náttúruhamfarir.“ 

Sjálf býr hún miðsvæðis í Reykjavík og hefur velt einu lengi fyrir sér. „Ég hef aldrei almennilega fengið svör við,“ segir hún. „Segjum sem svo, sem verður líklega ekki í mínu lífi en gæti gert, að það gjósi í sprungunni sem gengur úr Grafarholti og upp í Hengil og þar. Hvert eiga Reykvíkingar að fara? Ég er búin að pæla í þessu í mörg ár? Hvert eigum við að fara?“