Fréttir

Hart sótt að Daða Má: „Hann valdi hrokann“

Mynd
Stefán Einar Stefánsson, Daði Már Kristófersson og Haukur Arnþórsson. Samsett mynd.

Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hafi valið hroka þegar hann hafði tækifæri til að biðja þingið afsökunar um hafa ekki sagt þinginu allt sem hann vissi um aðdraganda þess að Hörður Arnarsson lét af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar, í tilfelli ráðherra sé enginn munur á því að segja ekki allan sannleikann og segja ósatt. 

Hörður lét af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar í byrjun október eftir 17 ár í starfi, Daði Már sagði í umræðum á þinginu 19. október að ástæðan hefði verið ágreiningur um almennar áherslur í stjórnun hafi legið að baki en ekki um nein einstök málefni.  

Sjá einnig: Daði Már:„Það er ekki þannig að ríkið banni þessu fólki að hittast“

Núna í byrjun nóvember birti RÚV ýmis gögn þar sem sést að Hörður fór í lok síðasta árs að gera athugasemdir við starfshætti bæði stjórnar Landsvirkjunar og ráðuneytisins. Varð það til þess að stjórnarandstaðan sótti hart að ráðherra á þinginu í gær. Daði Már sagði í samtali við MBL í gær að hann hafnaði því að hafa afvegaleitt þingið, hann hafi lýst því sem var, sem hafi verið deilur um stjórnarhætti, stjórnin eða ráðuneytið hafi ekki haft nein afskipti af daglegum rekstri Landsvirkjunar. 

Daði Már sagði í kvöldfréttum RÚV í gær að hann hafi fyrst verið upplýstur um núning á milli stjórnarinnar og Harðar í september. „Ég fékk bæði upplýsingar frá stjórn og það sem Hörður sagði, þá voru báðir aðilar sammála um að þetta snerist um stjórnarhætti,“ sagði Daði. Honum hafi verið kunnugt um minnisblöð en þau sýni það sama. Það hafi verið óheppilegt eftir á að hyggja að ekki varð af fundi sem Hörður óskaði eftir með honum. 

Daði Már hafi valið hrokann

Haukur segir í færslu á Facebook að Daði Már hafi farið af beinu brautinni í þessu máli, það sé nú spurning hvort hann geti aftur unnið sér inn traust. 

„Framganga hans hefur kallað á vangaveltur um hvort rétt sé að fela manni sem ekki er háður kjósendum ráðherravald. Því það er einkum á ábyrgðarkeðjunni við almenning sem hann flaskar,“ segir Haukur. 

„Nú geta menn deilt um það hvort þau orð hans voru ósannindi eða ekki – það er nú svo augljóst hvort er að varla þarf að tala um það. En auðvitað má segja að það að þegja – að segja ekki allan sannleikann – sé ekki það sama og að segja beinlínis ósatt. En í tilfelli ráðherra er þó enginn munur á þessu. Honum ber bæði að segja satt og að segja allan sannleikann. Það er þetta árans ábyrgðarsamband við kjósendur og opinberar skyldur stjórnmálamanna og einkum þeirra hæst settu – sem þvælast fyrir Daða Má. Hann virðist halda að hann hafi fengið skilyrðislaust vald. Það er svo sannarlega ekki þannig í ríki sem hefur valddreifingu og upplýsingarétt almennings í hávegum.“

Sem ráðherra beri Daða að halda uppi sannleikanum og láta almenningi í ljós allar staðreyndir málsins. 

„Eitt er að segja ósatt um að sagan sé öll sögð – annað að halda því fram í dag að hann hafi ekki logið; segja að engin lög hafi verið brotin og að hann hafi verið að reyna að auka fjarlægðina milli eigandans (ríkisins) og fyrirtækisins. Auðvitað er það ekki ráðherrans að kveða upp dóma um eigin vinnubrögð, en ekki verður annað séð en að stjórnarfundir hafi verið haldnir án forstjórans – sem er ótvírætt lagabrot,“ segir Haukur.

„Hvað varðar hitt atriðið, fjarlægðina, sem stundum er kallað armslengd, þá hefur komið í ljós að Daði Már reyndi að hafa veruleg áhrif á stjórn stofnunarinnar – og þá í gegnum stjórnina. Það heitir ekki að „auka fjarlægðina á milli eigandans og fyrirtækisins“ eins og hann segist hafa verið að gera. Þvert á móti, það er að auka miðstýringu og flokkast undir hina illræmdu stjórnarhætti Jónasar frá Hriflu.“

Nú sé spurningin um hvort Daði Már geti aftur skapað sér traust og tiltrú þannig að almenningur trúi honum, hann hafi haft tækifæri til þess í gær að biðja þingið afsökunar á því að hafa ekki sagt allan sannleikann.

„Það væri tilraun til að vinda ofan af mistökunum. Og hann mátti alls ekki bæta í og ljúga meira (segja að hann hafi sagt satt, að engin lög hafi verið brotin og að hann hafi verið að auka armslengd frá fyrirtækinu). Hann þurfti hins vegar að segja að sennilega hefðu lög verið brotin með hans atbeina og að hann hafi gengið of langt í að beita sér sem valdsmanni gagnvart Landsvirkjun. Hann gat verið iðrandi og gengið nógu langt til að allir tryðu því að hann meinti það sem hann segði, t.d. hefði hann getað rekið stjórnina og boðið Herði að koma aftur. Svona í tilraun til að bjarga eigin skinni,“ segir Haukur.

„En hann valdi hrokann. Og það hindrar hann í að sitja áfram sem ráðherra. Hann á – að mér virðist – bara eina útleið.“

Þá vanti enn að upplýsa um ýmsa þætti í málinu.

„Og auðvitað á eftir að koma fram hvaða málefni og fyrirætlanir það voru sem ráðherrann og stjórnin fór laumulega með. Var Hörður bara vandamálið – var hann of varkár stjórnandi – þarf raforkuframleiðslan að aukast með mikið meiri hraða en vönduð vinnubrögð hana leyfa? Þetta eru getgátur en hið sanna á eftir að koma í ljós. Það er hætt við því að Daði Már fái ekki aftur tækifæri til að snúa af sinni braut.“

Margir hafa tekið undir með Hauki, þar á meðal leikhúsgagnrýnandinn Jón Viðar Jónsson sem segir: „Ekki gleyma því sem er eitt af höfuðatriðunum: fjölmiðlarnir hér eru svo lélegir að svona pólitikusar, sem allir sjá að eru með óhreint mjög í pokahorni, komast upp með undanbrögð eins og þau sem við urðum vitni að í sjónvarpsfréttum. Ótrúlegt að RÚV skuli geta hegðað sér svona. Enda stjórnendur þar eins og þeir eru!“ 

Ber Daða Má saman við Gylfa

Stefán Einar Stefánsson, umsjónarmaður Spursmála á MBL, ber ráðherrasetu Daða Más við þegar Gylfi Magnússon gegndi embætti viðskiptaráðherra á árunum 2009 til 2010. 

„Gylfi Magnússon hvarf úr ráðherraliði Jóhönnustjórnarinnar þann 2. september 2010 og hafði þá setið á ráðherrastóli í 578 daga. Skýringin sem gefin var sú að verið væri að breyta ráðuneytaskipan. Allir vissu hver meginástæðan var. Gylfi lá undir þungu ámæli fyrir að hafa sagt þinginu ósatt. Hann virtist hafa setið á gögnum sem varpað gátu ljósi á hin alræmdu gengislán. Miklir hagsmunir voru þar undir,“ segir Stefán Einar. Segir hann að Daði Már hafi hagrætt sannleikanum þannig að mikilvægum upplýsingum var haldið frá þinginu. 

„Daði Már Kristófersson sætir harðri gagnrýni fyrir að hafa í ræðustól Alþingis sagt ósatt um raunverulegar ástæður að baki brotthvarfi Harðar Arnarsonar úr stóli forstjóra Landsvirkjunar. Þar eru miklir hagsmunir undir og stærsta og verðmætasta fyrirtæki landsins er í stjórnunarlegri upplausn vegna stjórnarhátta og að því er virðist pólitískrar íhlutunar ráðherra sem engin fordæmi eru fyrir. Daði Már hefur setið í ráðherraembætti í 682 daga.“