Fréttir

Georgios sýknaður af manndrápi á Kársnesi

Mynd
Georgios neitaði sök í málinu. DV/KSJ

Hinn gríski Georgios Ntentes hefur verið sýknaður af ákæru um að hafa myrt hinn portúgalska Edilsson Martin Zingara við Skjólbraut í Kópavogi föstudagskvöldið 28. nóvember 2025.

Vísir greinir frá þessu.

Dómurinn féll nú fyrir skemmstu en hefur ekki verið birtur. 

Georgios er ákærður fyrir að hafa veist með ofbeldi að Portúgalanum og svipt hann lífi með því að stinga hann þremur stungum í kviðinn með hníf, skorið hann og stungið nokkrum sinnum með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann eða þrýst á framanverðan háls hans, með þeim afleiðingum að brotaþoli varð fyrir umfangsmiklu blóðtapi sem leiddi til dauða hans. Fór ákæruvaldið fram á 16 ára fangelsisdóm.

Sjá einnig:

Georgios segist ekki hafa myrt vin sinn á Skjólbraut:„Þetta var bara venjulegur dagur“

Georgios neitaði hins vegar sök í málinu og sagði þá hafa verið góða vini. Þeir hefðu meðal annars neitt kókaíns tveimur dögum áður en Edilsson fannst látinn. Fyrrverandi kærasta Edilsson og systir komu að honum látnum þann 30. Nóvember.