Fréttir

Dyraat í Kópavogi fór úr böndunum: „Ég var í eina sekúndu í smá sjokki. Ég sá að stelpan var bara titrandi“

Mynd

Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru um líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum eftir að hafa elt hóp unglinga með eldhúshníf og slegið einn þeirra í höfuðið. Atvikið átti sér stað í fjölbýlishúsi í Kópavogi á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2022.

Maðurinn var að undirbúa kvöldmat þegar unglingarnir ákváðu að gera dyraat og spörkuðu í útidyr íbúðar hans af slíku afli að hurðarkarmurinn brotnaði. Á heimilinu voru einnig átta ára dóttir mannsins og þáverandi kærasta hans.

Maðurinn brást við með því að hlaupa á eftir unglingunum með eldhúshníf í hendi. Hann náði einum þeirra við lyftu á stigaganginum og sló hann í höfuðið. Drengurinn hlaut heilahristing og var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans.

„Ég var í eina sekúndu í smá sjokki“

Við skýrslutöku hjá lögreglu lýsti maðurinn því hvernig hann hefði upplifað atvikið.

„Þeir brutust inn, ég sá þá hlaupa í burtu og ég hljóp á eftir þeim. Ég hélt það væri rétt að stoppa þá,“ sagði maðurinn og kvaðst hafa óttast um öryggi fjölskyldu sinnar.

„Ég vildi bara sjá hver þetta var svo ég væri ekki með neitt tjón og hrætt barn inni á heimilinu. Mér fannst ég þurfa að bregðast við og þetta var bara skyndiákvörðun.“

Hann lýsti því jafnframt hvernig dóttir hans hefði brugðist við látunum.

„Ég var að skera og heyri bara boom. Ég var í eina sekúndu í smá sjokki. Ég sá að stelpan var bara titrandi. Hún var klædd í ljósar buxur og ég sá að hún var búin að missa þvag. Það æsti mig enn þá meira.“

Maðurinn sagðist þá hafa hlaupið á eftir unglingunum og náð einum þeirra við lyftuna.

„Ég náði honum, sló hann og dró hann út.“

Hann kvaðst ekki hafa áttað sig á því að um barn væri að ræða, enda hefðu unglingarnir verið hettuklæddir og brotaþoli hávaxnari en hann sjálfur. Allt hefði gerst á örfáum sekúndum.

Rannsóknin lá niðri lengi vel

Í niðurstöðu dómsins kemur fram að maðurinn hafi gerst sekur um háttsemi sem félli undir ákvæði hegningarlaga um líkamsárás. Hins vegar þótti ósannað að hann hefði mátt vita að brotaþoli væri barn og var hann því sýknaður af broti gegn barnaverndarlögum.

Líkamsárásarbrotið reyndist jafnframt fyrnt.

Rannsókn málsins hafði að mestu legið niðri frá desember 2022 þar til í nóvember 2025, þegar loks voru teknar formlegar skýrslur af vitnum. Á þessum tíma hafði þó verið óskað eftir áverkavottorði.

Dómurinn taldi að rannsóknin hefði stöðvast um óákveðinn tíma og að tveggja ára fyrningarfrestur brotsins hefði því runnið út áður en ákæra var gefin út í júní síðastliðnum.

Maðurinn var því sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins. Ríkissjóður greiðir málsvarnarlaun hans, samtals tæplega 875 þúsund krónur.