Fréttir

Veitingastöðum settur stóllinn fyrir dyrnar - Mega ekki hafa matseðilinn á QR-kóða fyrir utan

Mynd
Rekstraraðili veitingastaðar á Selfossi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann fór í hart vegna sektar fyrir að hafa matseðilinn á QR-kóða fyrir utan staðinn.

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu um að sekta veitingastað á Selfossi fyrir að hafa matseðilinn aðeins aðgengilegan, fyrir utan staðinn, í gegnum QR-kóða. Nefndin segir lög og reglur skýr veitingastaðir verði að hafa matseðilinn aðgengilegan fyrir utan dyr staðarins og að hafa hann í þessu formi dugi ekki til. 

Um er að ræða veitingastaðinn Fröken Selfoss. Rekstraraðili staðarins kærði í maí í fyrra til nefndarinnar þá ákvörðun Neytendastofu að hann hefði brotið lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, sem og reglur um verðupplýsingar við sölu á þjónustu, með því að birta ekki matseðil með verðupplýsingum og magnstærðum við inngang veitingastaðarins. Fyrir þetta var fyrirtækið sektað um 50.000 krónur.

Fyrirtækið andmælti og vildi meina að matseðlar og drykkjarseðlar blöstu við uppi á barborði þegar gengið væri inn á veitingastaðinn. Fyrir utan veitingastaðinn væri að finna fjögur vindskilti með QR-kóða sem beindi viðskiptavinum á matseðil á vefsíðu veitingastaðarins þar sem væri að finna verðlista og úrval. 

Neytendastofa taldi að birting QR-kóða á fjórum vindskiltum fyrir utan veitingastað teldist ekki verðmerking sem væri áberandi og auðvelt fyrir neytendur að sjá. Í þessu samhengi var einnig vísað til þess að umræddur QR-kóði hafi verið birtur samhliða öðrum upplýsingum.

Alltaf

Í kæru fyrirtækisins til áfrýjunarnefndar neytendamála kom m.a. fram að matseðill hafi frá upphafi verið aðgengilegur öllum gestum bæði á borði við inngöngudyr og í gegnum QR-kóða á fjórum vindskiltum fyrir utan staðinn. Fjöldi gesta hafi nýtt sér þetta aðgengi án vandkvæða og engar kvartanir hafi borist frá opnun veitingastaðarins í október 2023.

Vildi rekstraraðili Fröken Selfoss einnig meina að Neytendastofa hafi ekki sinnt leiðbeiningarskyldu sinni. Á engan hátt hafi verið útskýrt hvernig verðmerkingar þyrftu að vera uppsettar til að uppfylla skilyrði stofnunarinnar fyrir utan að tilgreint væri að veitingahús skyldu ávallt hafa matseðil með verðskrá við inngöngudyr. Taldi fyrirtækið að þessi krafa hafi verið uppfyllt í sínu tilviki.

Vildi fyrirtækið sömuleiðis meina að Neytendastofa hafi lagt ofuráherslu á formsatriði sem væru ekki í neinu samhengi við raunveruleg vandkvæði fyrir neytendur.

Var sömuleiðis fullyrt að Neytendastofa hefði ranglega haldið fram að matseðilinn væri ekki á barborði staðarins, sem væri tvo metra frá inngangnum.

Í andsvörum Neytendastofu kom fram að ljóst mætti vera af orðalagi þeirra laga og reglna sem málið varðaði að sú skylda að hafa matseðil með verðskrá við inngöngudyr gæti ekki talist uppfyllt með því að hafa matseðla og verðskrá inni á staðnum sjálfum. Þá teldist verðmerking ekki áberandi og auðveld fyrir neytendur að sjá þegar aðgengi að matseðli við inngöngudyr væri eingöngu í gegnum QR-kóða. Auk þess hafi í málinu umræddur QR-kóði verið birtur samhliða öðrum upplýsingum á vindskilti.

Stofnunin taldi sig einnig hafa sinnt leiðbeiningarskyldu sinni í málinu, það væri ekki í hennar verkahring að útfæra með hvaða hætti fyrirtæki uppfylltu þær skyldur sem á þau væru lögð.

Staðfest

Í niðurstöðu áfrýjunarnefndar neytendamála segir að það komi skýrt fram í reglum um verðupplýsingar um sölu og þjónustu að að veitingahús skuli ávallt hafa matseðil með verðskrá við inngöngudyr. Tilvísun ákvæðis í reglunum til þess að matseðillinn skuli vera við inngöngudyrnar verði að skilja sem svo að neytandi eigi ekki að þurfa að afla sér matseðilsins inni á staðnum heldur eigi að geta kynnt sér seðilinn rétt innan eða utan við inngöngudyrnar og án aðstoðar starfsfólks.

Nefndin segir að það að hafa matseðilinn fyrir utan staðinn í formi QR-kóða geti ekki talist jafngilda því að matseðillinn sjálfur sé sýnilegur, eins og áskilið sé í reglunum. Þá sé til þess að líta að þótt vel megi vera að mörgum neytendum sé tamt að nota slíka kóða til að kynna sér upplýsingar á netinu hafi notkun kóðans af hálfu veitingastaðarins falið í sér minni upplýsingagjöf til neytenda en það fyrirkomulag sem kveðið sé á um í reglunum. Rekstaraðili staðarins hafi því ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt reglunum.

Nefndin segir það heldur ekki duga til að uppfylla reglurnar að hafa matseðilinn á barborðinu, inni á staðnum tveimur metrum frá inngangnum. Þá þurfi neytendur að fara inn á staðinn til að kynna sér matseðilinn en samkvæmt áðurnefndum reglum þurfi matseðill með verðskrá að vera við inngöngudyr. Nefndin staðfestir því þá ákvörðun Neytendastofu að verðmerkingar veitingastaðarins hafi ekki verið í samræmi við lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu og reglur um verðupplýsingar við sölu á þjónustu.

Nefndin tekur ekki undir að Neytendastofa hafi ekki sinnt leiðbeiningarskyldu sinni í málinu og telur heldur ekki tilefni til að lækka 50.000 króna sektina sem lögð var á rekstraraðila Fröken Selfoss og því stendur sektin óhögguð.