Fréttir

Sigríður opnar sig um furðulegu símtölin frá skrifstofu RÚV: „Svo grét ég í tvo daga“

Mynd
Sigríður Pétursdóttir. Skjáskot/Samstöðin

„Ég hef aldrei sagt frá þessu áður opinberlega. Af því að ég var ekki til í að fara í viðtöl í mörg ár á eftir,“ segir Sigríður Pétursdóttir fjölmiðlakona í viðtali við Björn Þorláksson á Samstöðinni um uppsögn sína frá RÚV árið 2013, segir hún þar í fyrsta sinn opinberlega frá furðulegum símtölum sem henni bárust frá skrifstofu RÚV dagana á eftir. Nýverið var stórum hópi fólks sagt upp hjá Reykjavíkurborg. Árið 2013 réðst RÚV í svipaðar hagræðingaraðgerðir þar sem 39 manns var sagt upp, þar á meðal Sigríði sem hafði þá starfað á stofnuninni í um 30 ár.

Margt undanlegt

Hún starfaði á þeim tíma í Lundúnum og fylgdist með uppsögnunum úr fjarlægð, var hún meðal annars í sambandi við Eirík Guðmundsson heitinn. „Ég beið allan daginn eftir að síminn myndi hringja hjá mér. Ég var síðust, þá voru allir farnir, þá hringdi heimasíminn og heimsíminn hringdi aldrei í London, þá vissi ég hvað klukkan sló,“ segir Sigríður. „Þá voru þær hinum megin að segja mér upp. Ég er svo meðvirk. Ég vorkenndi þeim svo mikið, sérstaklega annarri þeirra sem ég var búin að vinna með í áratugi. Þannig að ég reyndi að halda andlitinu á meðan. Svo grét ég í tvo daga. Á náttsloppnum.“ Lagaðist það þegar sonur hennar keypti eldspúandi dreka handa henni í leikfangabúð, sem tilvísun í Fóstbræðrabrandarann um manninn sem hélt að hann væri kallaður dreki. 

„Það sem var undarlegast var að tölvupóstinum var lokað strax, alveg um leið. Ég var þá í samningaviðræðum við umboðsmann Emmu Thompson leikkonu og fleiri um viðtöl. Hún fær bara til baka um að þessi kona vinnur ekki lengur hjá þessari stofnun og svo voru tvær ungar kvikmyndagerðarkonur, Íslendingar, í neðanjarðarlestinni á leiðinni til mín í viðtal og ég var að reyna að stoppa þær,“ segir hún. 

„Þetta var allt svo rosalega undarlegt. Svo vissi ég ekki neitt. Átti ég að klára það sem ég var byrjuð á? Ég var til dæmis að búa til jólaþátt um sögu jólatrésskraut, ég átti að vera með pistil í Morgunglugganum daginn eftir, átti hann að vera á dagskrá? Ég hafði ekki hugmynd um hvernig þetta yrði.“

Símtölin furðulegu

Í kjölfarið fóru svo að koma furðuleg símtöl frá skrifstofu RÚV. „Það sem var furðulegast af þessu öllu var það að vikurnar á eftir var ég að fá fleiri símtöl frá skrifstofunni hjá RÚV þar sem greinilega fólk hafði ekki hugmynd um hvaða vinnuframlag ég hafði. Þeir sem ráku mig héldu að ég væri bara með Kviku aðra hvora viku, þeir hafa hugsað að þessi manneskja er ekki að leggja neitt fram í 100 prósent starf,“ útskýrir Sigríður.

„Svo fer að koma; Ertu ekki á verktakalaunum í Djöflaeyjunni? Nei, þetta er innifalið í 100 prósent starfinu mínu. Nú, ertu ekki á verktakalaunum í Íslendingasögum? Ertu ekki á verktakalaunum í Morgunglugganum? Ertu ekki á verktakalaunum í Okkar á milli? Ertu ekki á verktakalaunum í hátíðardagskránum? Nei, þetta er allt innifalið í 100 prósent starfinu mínu.“

Sigríður segir að hún hafi alls ekki verið sú eina sem fékk slík símtöl. „Margir af þeim sem voru látnir fara upplifðu nákvæmlega það sama.“ Stuttu síðar var Sigríður svo ráðin inn aftur sem verktaki í Djöflaeyjunni og ýmis innslög. „Ég varð að hafa einhvern pening, lifibrauð. Auðvitað fékk ég ekki nema pínu brot af því sem ég var með áður. Ég hafði bara unnið af mér rassgatið fyrir þessa stofnun svo lengi,“ segir hún. „Það má segja að það hafi bjargað mér að vera rekin, annars hefði ég bara unnið mig í gröfina þarna.“

Óþarfi að vera svona vondur við fólk

Sama svarið kom alltaf, stofnunin hafi fengið til sín bestu sérfræðinga til að ráðleggja sér varðandi uppsagnirnar, telur Sigríður það víst að enginn af þeim sérfræðingur hafi vitað neitt um útvarp eða sjónvarp. „Það sem var lang, langsárast, var að fá ekki að kveðja hlustendur. Bara að fá að segja; Takk fyrir að hlusta á Kviku.“

Henni finnst mikilvægt að koma í veg fyrir að aðferð sem þessi verði notuð áfram við uppsagnir. „Þetta er svo heimskulegt. Sérðu fyrir þér að fólk sem vinnur á Borgarbókasafninu, Ljósmyndasafninu eða Árbæjarsafni taki með sér einhverjar ótrúlega mikilvægar innherjaupplýsingar? Þetta er svo súrrealískt. Það er algjör óþarfi að vera svona vondur við fólk. Það er alveg hægt að segja upp fólki á faglegan hátt, af mannúð.“

Hér má hlusta á viðtalið í heild: