Nýlega var birtur úrskurður kærunefndar velferðarmála frá því í vor þar sem ákvörðun Vinnumálastofnunar um fella niður rétt manns til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði var staðfestur. Maðurinn hafði sagt upp starfi sínu á höfuðborgarsvæðinu og gaf þær skýringar að hann hefði neyðst til að gera það vegna þess að hann hafi ekki getað fundið húsnæði á viðráðanlegu verði og því flutt aftur til foreldra sinna á landsbyggðinni.
Í kæru mannsins til nefndarinnar kom fram að hann hafi misst íbúðina sem hann hafi verið að leigja ásamt félögum sínum. Hann hafi ekki haft efni á að leigja einn þegar félagar hans hefðu leitað að öðru húsnæði. Hann hafi flutt til foreldra sinna sem byggju úti á landi, eða í tveggja klukkustunda akstursfjarlægð frá fyrrum vinnustað hans. Að mati mannsins var óraunhæft að stunda þá vinnu áfram vegna mikillar keyrslu og veðurfars. Hann væri mjög ósáttur að þurfa að bíða í tvo mánuði eftir fyrstu greiðslu atvinnuleysisbóta.
Í greinargerð Vinnumálastofnunar vegna málsins kom m.a. fram að umsókn mannsins um atvinnuleysisbætur hafi verið samþykkt, en á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar hafi bótaréttur hans verið felldur niður í tvo mánuði þar sem hann hafi sjálfur sagt starfi sínu lausu.
Gildar ástæður
Vísar stofnunin til þess að í lögunum segi að þeir sem segi upp starfi sínu án gildra ástæðna skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en tveimur mánuðum eftir samþykkt umsóknar. Það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglum hvað teljist vera gildar ástæður.
Í athugasemdum með því frumvarpi sem varð að umræddum lögum sé þó sérstaklega fjallað um tvenns konar tilvik sem talin séu heyra til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Annars vegar sé það þegar um sé að ræða þau tilvik er maki hafi byrjað störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar séu það þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær. Í athugasemdunum sé þó sérstaklega áréttað að við þær aðstæður sé gert að skilyrði að vinnuveitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ástæður áður en launamaðurinn láti af störfum. Í ljósi þess að um matskennda ákvörðun sé að ræða sé Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggi falli að umræddri reglu.
Vinnumálastofnun sagði að þegar kæmi að skýringum mannsins þá hafi búferlaflutningar einir og sér ekki talist gild ástæða í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar fyrir uppsögn á starfi. Kæmi helst til álita að líta til slíkra skýringa þegar knýjandi aðstæður kölluðu á flutning svo sem ef fjölskyldan hafi þurft að flytja búferlum vegna starfa maka viðkomandi atvinnuleitanda eða aðrar óhjákvæmilegar ytri ástæður lægju að baki ákvörðun um að flytja á brott, segja upp starfi sínu og sækja í kjölfarið um atvinnuleysisbætur. Það væri ekki hægt að fallast á að það teldist til gildra ástæðna í skilningi ákvæðisins þegar umsækjandi tæki sjálfur ákvörðun um að flytja búferlum vegna leigu- eða fasteignaverðs, enda lægi fyrir að maðurinn hafi ekki verið með fast starf í hendi þegar hann hafi tekið þá ákvörðun að segja starfi sínu lausu.
Sviptur
Vinnumálastofnun taldi því manninn ekki hafa haft gildar ástæður fyrir því að segja upp starfi sínu.
Úrskurðarnefnd velferðarmála tekur undir það í sinni niðurstöðu. Nefndin segir að almennt verði að gera gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið sé hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar.
Það sé málefnalegt að gera þá kröfu til launþega að þeir segi ekki upp starfi sínu nema af algjörri nauðsyn, þegar annað starf sé ekki í hendi, við mat á því hvort viðkomandi skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Ekki verði séð að slíkt eigi við í tilviki mannsins og því ekki um að ræða gilda ástæðu fyrir uppsögn.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt mannsins, sem sagði upp vinnu sinni vegna húsnæðisvanda, í tvo mánuði er því staðfest.