Bandaríski tæknifrumkvöðullinn og milljónamæringurinn Adam Robinson var meðal þeirra níu sem létust þegar Learjet-einkaþota fórst nærri Greenacres í Flórída á sunnudag. Sambýliskona hans, tvö ung börn þeirra og barnfóstra fjölskyldunnar voru einnig um borð í vélinni.
Robinson var forstjóri hugbúnaðarfyrirtækjanna Retention.com og RB2B. Vélin var á leið til Bahamaeyja þegar slysið varð.
Aðstandendur farþeganna hafa nú greint frá því hverjir létust og sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeirra er minnst.
Börnin tveggja og fjögurra ára
Auk Robinsons létust sambýliskona hans, Helen Sharp, og börn þeirra tvö, Emma, fjögurra ára, og Charlie, tveggja ára.
„Adam og Helen voru einstaklega ástríkir foreldrar og Emma og Charlie voru ljósin í þeirra lífi,“ segir í yfirlýsingu fjölskyldnanna sem bandarískir fjölmiðlar vitna til.
Sjá einnig: Hrollvekjandi samskipti áhafnar við flugturninn fyrir flugslysið í Flórída – „Við höfum ekki meiri tíma
Barnfóstra fjölskyldunnar, Anita Maria Cetina, var einnig meðal þeirra sem fórust. Aðstandendur segja hana hafa verið mun meira en starfsmann fjölskyldunnar.
„Anita Maria annaðist Emmu og Charlie af einstakri hlýju og alúð og var í raun hluti af fjölskyldunni.“
Vinir fjölskyldunnar meðal hinna látnu
Tvær vinkonur fjölskyldunnar, Rachael Reed og Charmi Fehr, voru einnig meðal farþeganna sjö sem létust.
„Þær elskuðu fólkið sitt af öllu hjarta og af heilindum. Þær voru innilega elskaðar og við munum sakna þeirra óendanlega mikið,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.
Alls létust níu manns í slysinu, sjö farþegar og tveir flugmenn.
Önnur þeirra sem stjórnuðu vélinni var hin tvítuga Nathalia Gadelha Filgueiras. Stjúpfaðir hennar, Thiago Corteleti, staðfesti andlát hennar í samtali við bandarísku sjónvarpsstöðina WPBF.
Nathalia var búsett í Boca Raton í Flórída ásamt móður sinni og stjúpföður.