Fréttir

Íslendingur dæmdur í fangelsi í Kanada fyrir vörslu og dreifingu barnaníðsefnis - Var um tíma á flótta undan réttvísinni

Mynd

Þrjátíu og þriggja ára gamall Íslendingur hefur verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi í Kanada fyrir vörslur á barnaníðsefni, en að afplánun lokinni tekur við þriggja ára skilorð. Dómurinn var kveðinn upp við héraðsdómstólinn í Abbotsford þann 26. október sl.

Íslendingurinn heitir Jóhann Scott Sveinsson en hann játaði sök í tveimur ákæruliðum varðandi vörslu og dreifingu barnaníðsefnis í bænum Abbotsford í Bresku-Kólumbíu í Kanada. Annars vegar var um að ræða ákærulið um dreifingu barnaníðsefnis í júní 2022 og síðan vörslu slíks efnis í maí 2023. Jóhann tók ekki afstöðu til þriðja ákæruliðsins um dreifingu slíks efnis sem átti að hafa átt sér stað í janúar 2023.

Sjá einnig: Jóhann játar sök varðandi vörslu og dreifingu barnaníðsefnis - Svarar til saka 15. febrúar

Hefur DV fjallað ítarlega um málið sem hefur tekið töluverðan tíma að fara í gegnum kanadíska réttarkerfið en játning Jóhanns lá fyrir við árslok árið 2024. Jóhann á íslenskan föður en skoska móður og hefur hann starfað við kvikmyndagerð ytra, sem og á Íslandi. Hann flutti til Kanada árið 2019 ásamt íslenskri eiginkonu sinni. Áður var hann búsettur í Hveragerði en Jóhann flutti til Íslands frá Skotlandi árið 2009.

Jóhanni var ekki gert að sök að hafa framleitt barnaníðsefni heldur að hafa leitað að slíku efni á netinu, halað því niður og svo dreift áfram í lokuðum nethópum. Sér í lagi var um að ræða efni sem sýndi mæður misnota syni sína kynferðislega og eru þolendurnir börn undir tíu ára aldri. Jóhann mun hafa tjáð eiginkonu sinni að hann sé ekki haldinn barnagirnd heldur sé hann kynlífsfíkill og sú fíkn hafi stigmagnast og leitt hann út á þessar brautir. Jóhann lagði á flótta eftir að hann var yfirheyrður vegna málsins en þá flutti hann, ásamt eiginkonu sinni og barni, í snarhasti til bæjarins Stoney Plain, sem er innan Edmonton-héraðs í Alberta-ríki Kanada, svæði sem mun vera utan lögsögu lögreglunnar í Abbotsford. Síðar hefur hann ákveðið að snúa til baka og svara til saka. DV hafði heimild fyrir því árið 2024 að þá væri annað barn á leiðinni hjá hjónunum. 

Sjá einnig: Jóhann Scott flúði með fjölskylduna til Edmonton – Sakaður um að dreifa myndefni sem sýndi mæður misnota syni sína

Um tíma starfaði Jóhann hjá Linus Media Group sem rekur eina stærstu YouTube-rás heimsins, Linus Tech Tips, þar sem fjallað er um tækninýjungar en þegar mál Jóhanns kom upp var það aðeins eitt í röð hneykslismála sem skóku fyrirtækið. 

Sjá einnig: Barnaníðsmál Jóhanns kemur beint ofan í röð hneykslismála hjá Youtube-risanum sem hann starfaði hjá - „Ég er fullur ógeðs og skammast mín“