Fréttir

Íslandssiglingin breyttist í martröð – Krefjast framsals þjóns sem grunaður er um nauðgun

Mynd
Skemmtiferðaskipið Queen Anne við Ísafjarðarhöfn í hinni örlagaríku siglingu sumarið 2025. Mynd/Ísafjarðarhöfn

Flókið mál er komið upp eftir að farþegi kærði þjón skemmtiferðaskips í Íslandssiglingu um nauðgun. Bresk stjórnvöld íhuga nú hvort þjónninn verður framseldur til Bermúda.

Greint er frá málinu í miðlinum Trade Winds og fleirum.

Málið kom upp sumarið 2025 eftir Íslandssiglingu skemmtiferðaskipsins Queen Anne til Íslands. En skipið, sem siglir undir fána Bermúda, sigldi í kringum landið og stoppaði meðal annars í Reykjavík, Akureyri og Ísafirði.

Við heimkomuna í bresku borginni Southampton þann 17. ágúst var þjónn handtekinn vegna kæru farþega um nauðgun á kvenkyns farþega í káetu hennar. Þjónninn heitir Arvie Oporto og er frá Filippseyjum.

Vildu Oporto framseldan

Þann 24. september sama ár fóru yfirvöld á Bermúda fram á að Oporto yrði framseldur frá Bretlandi til þess að svara til saka. Töldu þau að hið meinta brot hefði verið framið á „efnahagslegu svæði Bermúda.“

Bermúda tilheyrir bresku krúnunni og Bretar fara þar með utanríkis og varnarmál en eyjaskeggjar, sem telja um 64 þúsund sálir, hafa heimastjórn í flestum innanríkismálum.

Málið er ekki auðvelt úrlausnar lögfræðilega þar sem hin meinta nauðgun átti sér stað á alþjóðlegu hafsvæði. Það er mitt á milli Íslands og Skotlands, að sögn skipstjórans. Oporto mætti fyrir dómara í London og var í gæsluvarðhaldi til 17. apríl á þessu ári þegar honum var sleppt á tryggingu.

Ráðherra tekur ákvörðunina

Í lok október var framsalskrafa yfirvalda í Bermúda tekin fyrir hjá breskum dómstólum. Í gær, 2. nóvember, féllst hæstiréttur í Bretlandi á að taka málið fyrir þar sem nauðgun um borð í skipi á alþjóðlegu hafsvæði gæti flokkast sem framseljanlegur glæpur.

Málið þurfi hins vegar að vera tekið aftur fyrir hjá lægri dómstól og svo verði stjórnmálin að koma að málinu. Það er að innanríkisráðherra taki á endanum ákvörðun um framsal til annars lands, jafn vel þó það sé hjálenda Bretlands.

„Dómurinn hefur þýðingu í málum er varða framsal vegna meintra brota um borð í skipum utan landhelgi þess ríkis sem skipin sigla undir fána. Hann staðfestir að skip teljist ekki sjálfkrafa vera hluti af yfirráðasvæði þess ríkis, en að þótt ekki sé til staðar lagafyrirmæli sem kveður á um slíka lagalega stöðu, hindrar það ekki beitingu þeirra viðmiða um lögsögu utan yfirráðasvæðis sem fram koma í 137. gr. (4. mgr.),“ segir í úrskurði hæstaréttar Bretlands.