Óhugnanlegar viðvaranir um yfirvofandi kjarnorkuárás bárust íbúum Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, seint á sunnudagskvöld eftir að óþekktir tölvuþrjótar réðust á neyðarviðvörunarkerfi úkraínskra yfirvalda.
Í skilaboðunum var einnig varað við geislavirkri mengun, efnavopnaárás og götubardögum í höfuðborginni. Viðvaranirnar birtust í neyðarviðvörunarforriti, sem notað er um alla Úkraínu, skömmu fyrir klukkan 23 að staðartíma. Skilaboðin voru bæði á úkraínsku og ensku, en stafsetningarvillur í ensku útgáfunni vöktu grunsemdir um að brotist hefði verið inn í kerfið.
Margir íbúar hunsuðu viðvaranirnar en aðrir urðu skelfingu lostnir.
„Ég varð skelfingu lostin í smástund. Ég lá uppi í rúmi og velti því fyrir mér hvað væri í vændum,“ sagði kona að nafni Nina í samtali við The Guardian.
Í öðrum skilaboðum, sem voru á rússnesku, var því haldið fram að Rússar væru við það að gera árás með Oreshnik-eldflaugum, sem geta borið kjarnaodda.
Umsjónaraðilar neyðarviðvörunarforritsins staðfestu á sunnudag að óviðkomandi aðilar hefðu haft áhrif á starfsemi þess. Tilkynningakerfið var tímabundið tekið úr sambandi og notendur varaðir við því að smella á tengla í grunsamlegum skilaboðum.
Ekki liggur fyrir hverjir stóðu að netárásinni. Rússneska Telegram-rásin Mash greindi þó frá því að tölvuþrjótahópurinn Hitcore hefði lýst ábyrgð á árásinni á hendur sér. Ekki hefur tekist að staðfesta þær upplýsingar.
Fölsku viðvaranirnar bárust á sama tíma og Rússar hófu á ný árásir á borgina Kherson í suðurhluta Úkraínu eftir sex daga vopnahlé.
Árásir héldu svo áfram í gær, mánudag. Rússneskur dróni hæfði sjúkrahús í Kherson, en enginn særðist. Í Vinnytsia-héraði í vesturhluta Úkraínu létust hins vegar tveir óbreyttir borgarar í drónaárás nærri menntastofnun, þar á meðal 13 ára stúlka. Nokkur önnur börn særðust.