Fréttir

Gunnar varar við viðhorfi sem hann þekkir úr eigin störfum – „Þetta er því miður ekki ný hugsun fyrir mér“

Mynd

Gunnar Ármannsson lögmaður segir að hann hafi í störfum sínum orðið var við það viðhorf að veikindaréttur sé eins konar inneign sem starfsmenn geti gengið á eftir hentugleika, jafnvel þótt þeir séu ekki óvinnufærir vegna veikinda.

Hann telur löngu tímabært að ræða þennan hugsunarhátt opinskátt og varar við því að hann geti grafið undan trausti til þeirra sem raunverulega þurfa á veikindaleyfi að halda. Gunnar varpar þessum vangaveltum fram í aðsendri grein á Vísi.

Athugasemdin sem vakti hann til umhugsunar

Tilefni skrifanna er athugasemd sem Gunnar rakst á í umræðu um uppsagnir hjá Reykjavíkurborg. Þar var lagt til að kannað yrði hvort einhverjir þeirra sem misstu vinnuna hefðu áður rætt við yfirmenn sína um fyrirhugað veikindaleyfi.

„Það getur auðvitað verið fullkomlega eðlilegt að starfsmaður viti fyrirfram að hann verði óvinnufær um tíma. Aðgerð er fyrirhuguð, meðferð stendur fyrir dyrum eða þekktur sjúkdómur gefur tilefni til að gera ráðstafanir,“ segir Gunnar.

Hann veltir hins vegar fyrir sér hvað felist í því að þurfa fyrirfram ákveðið veikindaleyfi þegar engar heilsufarslegar ástæður liggi fyrir.

„Veikindi eru ekki eitthvað sem við ráðstöfum eftir hentugleika. Fyrirsjáanleg fjarvera vegna þeirra á sér skýringu í heilsufari eða meðferð. Án slíkrar ástæðu hlýtur að vakna spurning um hvort verið sé að tala um annars konar leyfi undir nafni veikinda.“

Gunnar tekur fram að ekkert í athugasemdinni gefi tilefni til að saka starfsmenn Reykjavíkurborgar um misnotkun veikindaréttar eða ætla að veikindi hafi haft áhrif á val fólks til uppsagnar. Hún hafi hins vegar vakið hann til umhugsunar um viðhorf sem hann segist þekkja úr eigin starfsreynslu.

„Í störfum mínum hef ég kynnst því viðhorfi að veikindaréttur sé eins konar inneign. Starfsmaður hafi áunnið sér ákveðinn rétt og geti því gengið á hann þegar honum þykir þörf á tímabundnu hléi frá vinnu, jafnvel þótt veikindi valdi ekki óvinnufærni. Þetta er því miður ekki ný hugsun fyrir mér og mér finnst löngu tímabært að ræða hana opinskátt.“

Segir stjórnendur einnig bera ábyrgð

Gunnar leggur áherslu á að veikindarétturinn sé ein mikilvægasta stoð öryggis launafólks og að ekki megi draga ályktanir um veikindi fólks út frá því hvernig það ver tíma sínum utan vinnustaðar. Einstaklingur geti verið óvinnufær þótt hann fari út að ganga, hitti vini eða stundi hreyfingu, enda geti slíkt verið hluti bataferlisins.

Hann bendir jafnframt á að mikið álag og óánægja í starfi geti leitt til raunverulegra veikinda. Hins vegar verði að greina á milli óvinnufærni vegna veikinda og almennrar þarfar fyrir hvíld eða frí frá vinnu.

„Við leysum ekki allan vanda vinnustaða með því að færa hann undir veikindi.“

Gunnar telur stjórnendur einnig bera ábyrgð á því að halda þessum mörkum skýrum. Ef þeir líti sjálfir á veikindaleyfi sem almenna lausn á þörf starfsfólks fyrir frí geti slíkur hugsunarháttur fest sig í sessi. Þá geti fjarvera aukið álag á samstarfsfólk og haft áhrif á þjónustu.

Alvarlegustu afleiðingarnar telur Gunnar þó vera þær að slíkt viðhorf geti grafið undan trausti til þeirra sem raunverulega glíma við veikindi.

„Ef veikindaréttur er meðhöndlaður sem almennur frítökuréttur skapast hætta á að tortryggnin beinist líka að þeim sem þurfa raunverulega á honum að halda.“

Hann segir mikilvægt að standa vörð um veikindarétt launafólks, en jafnframt að viðurkenna að rétturinn sé ekki almenn inneign sem megi ganga á eftir hentugleika.

„Veikindarétturinn þarf að vera sterkur og fólk þarf að geta nýtt hann þegar þörfin kemur. Til þess þurfum við líka að geta sagt að veikindaréttur sé ekki inneign sem eðlilegt sé að ganga á án tillits til heilsufars.“