Fréttir

Ferðamaður gáttaður á að vera vísað frá landi – Með pening, bókað hótel og flugmiða heim

Mynd
Konunni var meinaður aðgangur að landinu þrátt fyrir að sýna fram á dvalarleyfi, atvinnu, nægt fjármagn, hótelbókun og heimfararmiða. Mynd/Ernir

Tælensk kona sem býr í Rúmeníu og hugðist ferðast til Íslands var snúið við af landamæravörðum eftir flug frá Amsterdam í Hollandi. Þrátt fyrir að hún hafi getað sýnt fram á að vera ferðamaður, með nægt reiðufé og gilt dvalarleyfi í ESB landi.

„Ég hef aldrei verið neins staðar fram yfir leyfilegan tíma, ég hef enga sakaskrá og góða reynslu af ferðalögum. Í síðustu viku heimsótti ég Noreg en þegar ég kom til Íslands fékk ég synjun á Keflavíkurflugvelli,“ segir tælensk kona, búsett í Rúmeníu sem hugðist ferðast til Íslands, í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit. Er hún gáttuð að hafa verið snúið við á íslensku landamærunum.

„Lögreglan sagði að ég hefði ekki nægar sannanir fyrir því að vera ferðamaður. Ég sýndi lögreglumanninum heimfararmiðann minn og bókun á hóteli, en hann sagði að það væri ekki nóg,“ segir konan, sem er núna komin aftur heim til Búkarest, höfuðborgar Rúmeníu.

Með góðar tekjur í tæknigeiranum

Segir hún að alls hafi sjö manns úr flugvélinni verið neitað um komu til landsins. Hinir farþegarnir hafi verið spænskir og hollenskir. Fólkið hafi ekki þekkst.

Bendir konan á að hún hafi búið lengi í Rúmeníu og sé með gilt dvalarleyfi þar. Hún starfi í tæknigeiranum og hafi góðar tekjur.

„Ég hef meira en nóg af pening á bankareikningunum mínum. Líka tvö greiðslukort,“ segir hún.

Aldrei lent í vandræðum

Hún hafi ferðast mikið um Schengen svæðið á undanförnum fimm árum og aldrei lent í vandræðum. Meðal annars til Ítalíu, Spánar, Austurríkis og Danmerkur.

„Það var allt í góðu lagi. Ég veit ekki hvað er að gerast á Íslandi,“ segir hún. Lögreglan hafi skoðað bæði atvinnuleyfið hennar og dvalarleyfið, hótelbókunina, bankareikningana og farmiðann heim. Þá segir hún að lögreglan hafi meira að segja talað símleiðis við mannauðsdeildina í fyrirtækinu sem hún vinnur hjá.

Rúmenskir vasaþjófar

Hafa skapast heilmiklar umræður um málið. Meðal annars að mikið hafi verið fjallað um vasaþjófa frá Rúmeníu í fréttum hérlendis.

„Kannski grunaði þá að þú værir ekki raunverulegur ferðamaður, heldur hefðir komið til að stela frá ferðamönnum,“ segir einn. „Ísland glímir við alvarlegt vandamál varðandi vasaþjófa frá Rúmeníu (og öðrum löndum Austur-Evrópu). Þetta ætti ekki að hafa áhrif á ákvarðanir þeirra, þar sem flestir sem ferðast frá Rúmeníu eru ekki þjófar heldur alvöru ferðamenn, en það kæmi mér ekki á óvart ef þetta væri ástæðan fyrir því að þér var meinaður aðgangur.“

„Rúmensk ​​vasaþjófagengi hafa verið mjög áberandi á Íslandi undanfarna mánuði og ár. Þetta gæti verið ástæðan fyrir því að þér var vísað frá,“ segir annar.